Færsluflokkur: Menning og listir

Lalalalaguðlalanasistartrallalala...

Ég viðurkenni það fúslega að þó ég sé bæði trúlaus og andsnúin þjóðernishyggju, þá innihalda nokkur af mínum uppáhaldslögum trúarleg eða þjóðernisleg þemu. Sem dæmi má nefna America the Beautiful og Battle Hymn of the Republic, sérstaklega í þeim útgáfum sem ég vísa á.

 

America the Beautiful er auðvitað óttalegt þjóðrembuljóð, og að auki hálfkrípí að hlusta á þessa útgáfu, sem var tekin upp til styrktar fórnarlömbum næníleven, í ljósi þess sem ríkisstjórnin kom í gegn í skjóli hryðjuverkanna. Ljóðið er hins vegar fallegt þrátt fyrir það: línan "and crown thy good with brotherhood from sea to shining sea" fær mig alltaf til að tárast. Kannske er það vegna þeirra hugsjóna hinna tiltölulega ungu Ammríku sem  koma fram í ljóðinu: frelsi, jafnrétti, bræðralag (enda ammríska byltingin innblásin af þeirri frönsku). Lokalína annars vers sýnir þetta: "confirm thy soul in self-control, thy liberty in law". 

 

Battle Hymn of the Republic er eilítið öðruvísi. Það ljóð var upphaflega samið sem baráttusöngur gegn þrælahaldi. Í dag er lagið leikið sem lokalag á landsfundum repúblikana*. Það er í raun mun meira trúarljóð en ættjarðarljóð, sérstaklega í upprunalegri útgáfu, en hún inniheldur t.d. þetta vers:

"I have read a fiery gospel writ in burnished rows of steel:

"As ye deal with my condemners, so with you my grace shall deal;

Let the Hero, born of woman, crush the serpent with his heel,

Since God is marching on."

 

Ég er líklega bara veik fyrir lögum sem sungin eru af krafti og sannfæringu, sama hvert innihaldið er. Ég hef stundum grínast með það að hefði ég verið uppi á tímum Þriðja Ríkisins hefði ég sjálfsagt verið hinn ágætasti nasisti, enda Horst Wessel Lied og Danubia flott lög - svo voru marsarnir nokkuð djollí.

 

 Þeim örfáu lesendum sem nenna öðru en að rífast um íslam er velkomið að svara spurningunni

 

Eru einhver lög sem hafa sterk áhrif á þig þó þú sért ósammála skilaboðum textans, saga lags eða ljóðs sé 'óþægileg', eða þér þyki höfundurinn óviðkunnanlegur af einhverjum ástæðum?

 

 

 

 

*Ég veit að Lincoln var repúblikani. Nútíma repúblikanar virðast hins vegar margir hverjir hafa gleymt því. Kaldhæðnislegra er þó að heyra harða repúblikana syngja fyrra ljóðið, þar sem margir þeirra myndu vilja neita höfundinum um mannréttindi í dag.


Fokk fokk, fokkedífokk.

Ég er í Budapest í allt of miklum hita. Reyndar fariđ ađ mildast ađeins međ kvöldinu, en á morgun á ađ vera 40 fokking stiga hiti.

 

Og ég orđin blönk...eins og venjulega. Tharf (af hverju taka Ungverjar ekki upp thorniđ, thađ er svo skemmtilegur stafur) sem betur fer ekki ađ borga hótel eđa lestarferđir, en andskotans tóbakiđ og bölvunin sem fylgir hitanum - aukin vatnsthörf (hér er vatniđ thó drekkanlegt, held ég, annađ en pólska kranavatniđ beint upp úr seigfljótandi drullupollinum Vistula) -  og svo auđvitađ matur.

Annars er ég stödd í miđju gettóinu hér í Budapest: allt um kring eru orthodox-rabbínar međ sína slöngulokka og hatta -  og sjálfsagt einar milljón synagógur. Samt eru gyđingarnir hér ekki nema 0,5% af íbúum Budapest -  einu sinni voru their víst 25%. Hvađ skeđi eiginlega?

 

Ég er komin á thá skođun ađ senda eigi alla Helfararafneitendur upp í Treblinka og leyfa theim ađ búa thar án rafmagns, hreinlaetisađstöđu og internets. Sjáum hvađ their segja thá (annađ en "Doddi, thađ er komiđ ađ thér ađ moka skítarennuna").

Sem endranaer treysti ég á "the kindness of (virtual) strangers" - enda mottó allra heiđvirđra Íslendinga...

 

Thetta reddast! 

 Reikningsnúmeriđ mitt er :

 1152-05-405227

Kennitala: 231184 - 3689

Ég treysti thví ađ thiđ fariđ varlega međ thetta - annars gaeti einhver stoliđ thessum 180 krónum sem ég á... 


Um bloggið

Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Kverúlant

Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Lestu bara helvítis bloggið, minn karakter kemur þessu ekkert við.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...!
  • Untitled

Bækur

Nýlesið/eftirlæti

  • Mark Steel: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian
    Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
    *****
  • Gregory Maguire: Mirror, Mirror
    Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
    ****
  • Ýmsir: Lonely Planet: Europe on a shoestring (ISBN: 1740597796 )
    Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
    ***

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband