21.3.2007 | 13:51
Gat verið!
Þetta er nú meiri andskotans græðgin! Er ekki nóg að við aumir imbakassafíklar þurfum að þola auglýsingafarganið sem ælt er yfir okkur á tíu mínútna fresti, heldur þurfum við líka að fara að borga fyrir gubbuna!? Það er eitt að fríar stöðvar noti heilaþvottinn til tekjuöflunar, en mér dettur ekki í hug að fara að borga morð fjár fyrir tuttugu mínútna þátt sem búið er að teygja í hálftíma með auglýsingum um klósetthreinsikökur og kókómjólk.
Annars eru þessar klósettauglýsingar alveg kapítuli út af fyrir sig. Tökum sem dæmi vesalings konuna sem nennir ekki að þrífa klósettskálina, en finnst þægilegra að mjaka "litla klósetthreinsinum" sínum fimm sentimetra til og frá, til að grábrún skánin renni af á réttum stöðum. Síðan held ég að maðurinn sem á Harpic-klósettið þurfi að fara að kíkja til læknis, þar sem hann er greinilega með svokallaða sprengiskitu. Þetta er auðvitað ekki eðlilegt.
"Má ég sjá gráu skyrtuna þína?"
"Hún er hvít!"
"Hún er ekki það sem við köllum hvítt"
"Hverskonar andskotans dónaskapur er þetta!? Ertu skyrturasisti? Láttu mig í friði!"
Það sem mér finnst best við vöruna sem auglýst er, er það að skyrtan kemur upp úr leginum hvít, hrein, þurr og straujuð. Fyrir svona vöru myndi ég glöð greiða háar fjárhæðir.
Svo ég noti tækifærið til að nöldra enn meira; hver er þulurinn í bíómyndaauglýsingunum? Hver réð þennan ómálga vanvita? The Descent verður The Decent, Ralph Fiennes verður Ralph Fíenness...er ekki lágmark að kunna að bera fram nöfn og titla? Ég er viss um að hann er launsonur Valgerðar og mannsins í Vörutorginu.
Og hver ber ábyrgð á því að skipa utanríkisráðherra sem getur ekki tjáð sig skammarlaust á enskri tungu? Hvað er næst? Fjármálaráðherra sem kann ekki að telja? Ólæs menntamálaráðherra?
Fjandinn hafi það, ég flyt úr landi.
![]() |
Sirkus tengdur Stöð 2 og í lokaðri dagskrá |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
16.3.2007 | 20:19
Þóf
Mikið óskaplega fer þetta í taugarnar á mér. Alltaf þurfa fréttamenn að kasta fram einhverjum tískufrösum sem engum tilgangi gegna. Þessa dagana fer orðalagið "verðskulduð athygli" í mínar fínustu. Aldrei er talað um það sem fær óverðskuldaða athygli.
Í þann flokk falla "fréttir" af Britney Spears. Það er ekkert voðalega merkilegt að fræg manneskja fari í meðferð eða klippingu, sama hversu óvenjuleg klippingin er. Mig langar, þó ekki væri nema einu sinni, að heyra einhverna tala um óverðskuldaða athygli. Það væri assgoti hressandi.
"Nýjasta útspil Britney Spears hefur vakið óverðskuldaða athygli víða um heim."
Annars er það helst í fréttum að ég hef ákveðið að minnast alltaf á þá hópa sem fólk tilheyrir þegar ég ræði um það. Það er miklu skemmtilegra, sérstaklega ef notaðir eru "politically incorrect" frasar, en þó ekki á neikvæðan hátt. Það er bara bónus ef hægt er að láta það stuðla. Kynvillingurinn knái, Páll Óskar. Geðþekki gyðingurinn Woody Allen. Öryrkinn indæli Sigursteinn Másson.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
13.3.2007 | 23:31
Tannvernd
Ég er svo heppin að vera með lélegar tennur. Svona hafa þær alltaf verið, sama hvað ég bursta, skola og rótfylli. Þær hreinlega molna í kjaftinum á mér, og það er ekkert sérstaklega heillandi lúkk. Sem skattgreiðandi og ríkisborgari á ég samkvæmt lögum rétt á niðurgreiddri heilbrigðisþjónustu; sem stórreykingamaður á ég í meiri hættu að fá krabbamein - ríkið borgar. Sem þunglyndissjúklingur þarf ég lyf - ríkið borgar. En þó tannskemmdir mínar séu (a.m.k. að hluta til) af völdum erfðagalla, þarf ég að borga allar viðgerðir sjálf, eða -eins og mín fjárhagsstaða er í dag- einfaldlega láta mauka eplið súra og sjúga það í gegnum rör.
Sem skjólstæðingur Félagsmálastofnunar (eða Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar eins og batteríið heitir víst í dag) á ég rétt á styrk til tannviðgerða. Síðast þegar ég vissi (fyrir tveimur árum) var upphæðin 40.000 krónur. Að láta draga eina tönn kostar í kringum 5.000 krónur með deyfingu. Tannplantar kosta 1-200.000 krónur - hver tönn. Falskar tennur (gómar) kosta svipað - fyrir allar tennurnar. Hvort sem endurnýjunin kostar hundrað þúsund eða milljón er staðreyndin sú að ég hef ekki efni á því.
Hversvegna eru tennur ekki hluti líkamans undir íslenskum almannatryggingum, nema hjá eldri borgurum, öryrkjum og börnum?
Sú tannlæknaþjónusta sem ég fékk í grunnskóla var reyndar ekki upp á marga fiska, og eftir að mér varð skylt að borga fullt verð fyrir þjónustuna hefur tönnunum heldur hrakað. Eftir því sem ég best veit eru fjórar alheilar tennur uppí mér, allt endajaxlar. Hinar eru í misgóðu ástandi; nokkrar eru varla meira en rót, aðrar þurfa ekki mikið til að fara sömu leið. Þessu fylgja að sjálfsögðu nokkur óþægindi; framtönnunum þori ég vart að beita svo nokkru nemi, enda eru þrjár þeirra sundurtættar og sprungnar, tveir jaxlar eru ónothæfir auk þess sem annar þeirra veldur mér kvölum með reglulegu millibili. Það þarf vart að taka fram að bros mitt er ekki af þeirri tegund sem lýsir upp herbergi. Það er heldur að glottið tæmi herbergi, þar sem þessu öllu fylgir fnykur sá sem gýs upp úr rotnum tannrótum.
Nú hugsa lesendur sjálfsagt sem svo að ég geti nú alveg eins bitið (varlega) á jaxlinn og greitt tannsa smátt og smátt, komið þessu í lag og fengið fínasta Tom-Cruise-bros. En það er ekki svo gott. Eitt sinn er ég -sárþjáð- mætti í tíma hjá tannlækni (ekki mínum venjulega, þar sem sá var í fríi), leit hann upp í mig, fussaði og sveiaði, og rak mig út með fúkyrðum og hótunum um ákæru þegar hann uppgötvaði að ég var ekki með nokkurt fé handbært. Hafði málið þó verið útskýrt vendilega fyrir manneskjunni sem ansaði í símann þegar tíminn var pantaður, og hélt hún það lítið mál að fá að greiða skuldina um næstu mánaðamót, sem voru ekki langt undan.
Ég skil vel að tannlæknar vilji fá greitt fyrir sína vinnu, en eru virkilega engir hugsjóna-tannlæknar þarna úti? Er ekki einn einasti tannlæknir sem finnst mikilvægara að gera við tennur en að rukka sjúkling um fimm þúsund krónur fyrir tíu mínútna skoðun? Er það réttlætanlegt að nýta sér þessa fáránlegu lagasetningu til að okra á fólki sem þjáist? Ég er hrædd um að hér yrði uppi fótur og fit ef skurðlæknir neitaði að bjarga lífi sjúklings vegna þess að deyjandi maðurinn gæti ekki staðgreitt hjartaaðgerðina sína.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
9.3.2007 | 23:59
Frelsið
Tjáningarfrelsið virðist nokkuð teygjanlegt hugtak. Hér ríkir tjáningarfrelsi, nema þegar kemur að hlutum eins og áfengis- eða tóbaksauglýsingum. Í Þýskalandi ríkir tjáningarfrelsi á meðan þú heldur því ekki fram að Helförin hafi ekki átt sér stað eða verið umfangsminni en raun ber vitni. Í Bandaríkjunum...við skulum ekki einu sinni minnast á þau mannréttindabrot sem þar hafa átt sér stað síðan 2001. Út frá pælingum um tjáningarfrelsi fór ég að lesa mér til um bækur og kvikmyndir sem hafa verið bannaðar. Margar þeirra þykja ekki grófar í dag, og sumar eru taldar til meistaraverka. Hér er örlítið brot af kvikmyndum sem hafa verið bannaðar:
King Kong, Drakúla, og Frankenstein - allar bannaðar í Ástralíu 1942.
Dirty Harry - bönnuð í Finnlandi 1972
Texas Chainsaw Massacre - bönnuð í Þýskalandi enn þann dag í dag
Monty Python's Meaning of Life - bönnuð á Írlandi frá 1983-1990
Clockwork Orange - bönnuð á Írlandi frá 1971-2000
The Great Dictator - bönnuð á Spáni frá 1940-1976
Nosferatu - bönnuð í Svíþjóð 1922-1972
Þarna sést að það eru ekki bara "vondu" þjóðirnar, eins og Malasía og Kína sem hefta tjáningarfrelsið.
Við verðum að muna að öll höft á tjáningarfrelsið eru slæm, jafnvel þó ritskoðunin sé falin á bak við göfugan málstað. Margar bækur og myndir hafa verið bannaðar í þeim göfuga tilgangi að "vernda börnin" eða jafnvel "vernda fólk fyrir spillingu". Slík forræðishyggja er alltaf röng. Það á ekki að vera í höndum ríkisins að velja og hafna fyrir einstaklinginn, það á að vera einstaklingsins sjálfs að velja eigin afþreyingu, hvort sem hún felst í lestri, lyfjaneyslu eða ferðalögum.
Ég vil nota tækifærið og minnast á aðra tegund forræðishyggju, en hún hefur átt miklum vinsældum að fagna hérlendis undanfarið. Hana kýs ég að nefna kapítalíska forræðishyggju. Með kapítalískri forræðishyggju á ég við þau höft sem ríkið leggur á hluti sem það þykist þurfa að "vernda" okkur fyrir, svo sem áfengi og tóbak, og að vissu leyti sykur og fitu. Í stað þess að banna þessa hluti er verði þeirra haldið háu, svo einungis hinir betur efnuðu hafa efni á slíkum vörum. Þetta er líka forræðishyggja, sama hversu vel hún er falin á bak við heilbrigðissjónarmið og annað "göfugt". Nú getur vel verið að hækkandi verð á tóbaki verði til þess að einhverjir hætti að reykja, og það er svo sem fínt svo langt sem það nær. Lítum aðeins á hina hliðina: byrjar fólk að drekka eða reykja vegna þess að "það er bara svo fjári ódýrt"? Nei. Byrjar fólk að neyta eiturlyfja vegna þess að "það er svo auðvelt að ná í þau"? Nei. Ef þetta væri allt bannað (og bannið hefði tilætluð áhrif) væri vandinn úr sögunni, Ísland gæti orðið fínasta fasistaríki og við, syndararnir sem reykja og drekka, gætum flutt af landi brott. Það er hins vegar ekki gert, en þess í stað fá kapítalísku fasistarnir að ráðskast með okkur með skattlagninguna að vopni, og við klöppum húrra fyrir heilsuverndarsjónarmiðum.
Vörumst hræsnina. Bann er fasískt, en það er þó heiðarlegt. Forræðishyggja dulbúin sem vernd gegn illum öflum er það ekki, sama hversu "góður" málstaðurinn er.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
9.3.2007 | 15:24
Klám
Já, þó það sé að bera í bakkafullan lækinn ætla ég að tjá mig um meinta sorahugsun annars bloggara. Ég sá loksins textann umrædda (á öðru bloggi), og datt fyrst í hug að hér væri um að ræða tilraun bloggarans til kaldhæðni, en eftir að hafa rennt stuttlega í gegnum aðrar færslur hennar finnst mér það sífellt ólíklegra. Umrætt blogg er nefnilega algjörlega laust við kímni, kaldhæðni og annað slíkt, en vera má að þessi færsla hafi verið misheppnuð fyrsta tilraun.
Einn skemmtilegasti húmoristi síðustu aldar er stærðfræðingurinn og píanóleikarinn Tom Lehrer, sm margir kannast sjálfsagt við. Eitt laga hans ber titilinn Obscenity, og í textanum má finna eftirfarandi orð:
All books can be indecent books, though recent books are bolder, for filth -I'm glad to say- is in the mind of the beholder. When correctly viewed, everything is lewd!
Getur verið að bloggarinn hafi á lúmskan hátt verið að gera grín að klámumræðu síðustu daga, eða var henni alvara með þessu? Dæmi hver fyrir sig:
Auglýsingabæklingur frá Smáralind var borinn í hús í dag. Á forsíðunni má sjá unga stúlku á háum hælum í velþekktri stellingu úr klámmyndum. Hún er tilbúin til þess að láta taka sig aftan frá. Með munninn opinn býður hún lesendum af karlkyni að setja skaufa sína upp í sig.
Forsíðumyndin blandar saman sakleysi barnæskunnar (stúlkan er umkringd böngsum og loðdýrum) við tákn úr klámi (líkamsstellingin, opni munnurinn og háu hælarnir). Útkoman verður hin saklausa hóra, hin hreina mey sem í einni svipan verður klámmyndadrottning. Er slík notkun á táknum, sem eru flestum fullorðnum vel kunnug, viðeigandi á bækling sem er ætlaður fermingarbörnum?Á öðrum stað í auglýsingablaðinu eru myndir af þekktri söngkonu sem máluð er eins og Barbie-dúkka. Í texta segir: Barbie loves MAC er ný litalína sem kemur aðeins í takmarkaðan tíma sérstaklega hönnuð fyrir allar lifandi dúkkur. Eru stúlkurnar, sem eru um það bil að fara að fermast, aðeins lifandi dúkkur?
Skilaboðin sem auglýsingablað Smáralindar sendir ungum stúlkum eru þessi: Verið undirgefnar kynlífsdúkkur.
Hefði þetta verið ritað sem háðsádeila á þá sem sjá klám og perraskap í hverju horni þætti mér þetta nokkuð beitt. Því miður bendir allt til hins gagnstæða.
Bloggar | Breytt 14.3.2007 kl. 20:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.3.2007 | 02:25
Undirtekt
...víst er það orð.
Ég verð að taka (að stærstum hluta) undir með Önnu Pönnu (sem reyndar vitnar í einhvern annan): Jafnvægi er ekki jafnrétti!
Að reyna að troða konum inn í einhverjar ákveðnar stöður til þess eins að fylla einhvern "kynjakvóta" eða vice versa, er alveg jafn fáránlegt og að heimta að í hverri stjórn/nefnd séu 10% samkynhneigð, 10% örvhent, 10% sem finnst brúnn fallegur litur, 10 % sem borða ekki kjöt o.s.frv. Auðvitað eru ákveðnir fordómar gagnvart t.d. körlum sem vinna á leikskólum eða konum í byggingarvinnu, en er það að virkilega leiðin gegn fordómum að vera endalaust að benda á frávikin?
Nei sko! Svartur maður sem er forstjóri! Kona sem er verkstjóri! Karl sem er leikskólastjóri! Hommi sem er formaður öryrkjabandalagsins! Mæ god! En speeees!
Djísös fokking kræst, hvernig væri -ég er bara að varpa hugmyndinni fram- að dæma fólk út frá verðleikum hvers og eins, í stað þess að reyna endalaust að flokka það í einhverja fyrirfram ákveðna hópa;
hommi, kona, gothari, karlmaður, hnakki, pönkari, reykingamaður, rokkari, íþróttamaður, frjálshyggjumaður, lesbía, hægri-/vinstri-/miðju-maður, dreifari, höfuðborgarbúi, útlendingur, Íslendingur, nýbúi, grænmetisæta, gyðingur, kristinn, múslimi, Bahá'íi, búddisti, hindúi, feitur, grannur, emo, kani, forstjóri, ræstitæknir, múrari, bóndi, flugþjónn...
viljið þið virkilega láta skilgreina ykkur út frá starfi, útliti eða pólitískum skoðunum?
Nú getur vel verið að þið hittið strangtrúaðan karlkyns múslima sem veitir konunni sinni allt sem hún vill, gothara sem fílar Mozart, nýbúa sem leiðréttir málfræðivillurnar þínar, sjómann sem finnst kvótakerfið asnalegt, forstjóra sem er kommúnisti...er ekki betra að vera opinn og ræða við fólk -án fordóma- en að gera ráð fyrir að fólk falli í þægilega flokka?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.3.2007 | 19:02
Fyrsta bloggfærsla
Þessi ömurlega hugmyndasnauða færsla er búin til af einhverjum fasískum tölvunirði þegar ný vefdagbók er sett á laggirnar. Henni má eyða eða breyta að vild.
Flott er.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Tenglar
Gamalt tuð
- Blókarspotti Hróa Hróaábendingar
- Blókarspotti Dautt blogg
- Fólk er fífl.is Dautt blogg
- FerðaBlogg Á lífi - fylgist með
- MittSvæði
- Lifandi dagbók Í andarslitrunum
Bloggvinir
-
malacai
-
pannan
-
stutturdreki
-
skrekkur
-
einarsmaeli
-
aulinn
-
furduvera
-
fsfi
-
valgeir
-
gregg
-
gurrihar
-
zeriaph
-
hvilberg
-
hallurg
-
rattati
-
heidar
-
hexia
-
himmalingur
-
hjaltirunar
-
disdis
-
jevbmaack
-
jakobk
-
changes
-
prakkarinn
-
jonthorolafsson
-
andmenning
-
ugluspegill
-
miniar
-
mist
-
hnodri
-
reputo
-
robertb
-
runavala
-
sigmarg
-
sigurjon
-
shogun
-
nimbus
-
skastrik
-
svanhvitljosbjorg
-
stormsker
-
kariaudar
-
zion
-
tara
-
taraji
-
texi
-
thelmaasdisar
-
torfusamtokin
-
toshiki
-
tryggvienator
-
upprifinn
-
vga
-
vest1
-
fingurbjorg
-
gummih
-
kiza
-
kreppukallinn
-
krossgata
-
isdrottningin
-
nosejob
-
olafurfa
-
tharfagreinir
-
thorgnyr
-
valli57
-
apalsson
-
skagstrendingur
-
partialderivative
-
biggihs
-
bjorn-geir
-
dingli
-
einarjon
-
glamor
-
breyting
-
gthg
-
sveinnelh
-
hehau
-
hordurt
-
kt
-
omnivore
-
olijon
-
styrmirr
-
lalamiko
-
thorrialmennings
Bækur
Nýlesið/eftirlæti
-
Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian -
Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
: Mirror, Mirror -
(ISBN: 1740597796 )
Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
: Lonely Planet: Europe on a shoestring
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.6.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 3486
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar