Heimska!

Ég hef reynt - í alvöru -  að vera umburðarlynd gagnvart skoðunum annarra. En svona helvítis kjaftæði hreinlega get ég ekki þolað.  Að lesa sumar athugasemdirnar og ekki síður svör hins trúarblindaða höfundar er of mikið fyrir mína takmörkuðu þolinmæði.  Er ekki allt í lagi heima hjá þessu liði? "Fóstur er ekki hluti af líkama konunnar"? Nei, það er alveg rétt, fóstrið er aðskilin vera, sem þrífst innan líkama konunnar, nærist á hennar fæðu og nýtir hennar líkama til að vaxa. Svona eins og sníkill lifir á hýsli. Að nota trúarbrögð sem "rök" í svona umræðu er álíka gáfulegt og að rífast um hvort tunglið sé úr roquefort eða brie.

 

Af hverju verður frelsaða fólkið nánast (sjá undantekningu t.d. hér ) alltaf sjálfumglatt og fullt fyrirlitningar á okkur hinum? Hversvegna getur þetta pakk ekki bara sætt sig við það að það hefur ekki alltaf rétt fyrir sér, og að trú er ekki forsenda siðferðis? Hversvegna eru trúarbrögð yfirleitt til? Fjandinn hafi það, ég er flutt til Mars.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Ég er fluttur til Snickers!

Sigurjón, 22.5.2007 kl. 01:25

2 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Shut up of I'll kick you in the Twix.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 22.5.2007 kl. 01:26

3 Smámynd: Sigurjón

Hmmm... Eru það tveir svertingjar í svefnpoka?

Sigurjón, 22.5.2007 kl. 01:40

4 Smámynd: Arfi

Öss öss öss það vita allir að trúaða fólkið er betra en við hin, skítugi lýðurinn Þetta er bara phase hjá okkur, við munum sjá ljósið fyrr eða síðar Þangað til verðum við bara að þjást, því það er svo erfitt að vera við....

Kaldhæðni endar. 

Arfi, 22.5.2007 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Kverúlant

Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Lestu bara helvítis bloggið, minn karakter kemur þessu ekkert við.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...!
  • Untitled

Bækur

Nýlesið/eftirlæti

  • Mark Steel: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian
    Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
    *****
  • Gregory Maguire: Mirror, Mirror
    Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
    ****
  • Ýmsir: Lonely Planet: Europe on a shoestring (ISBN: 1740597796 )
    Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
    ***

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 3061

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband