Strætó sökkar.

Glefsa af heimasíðu Strætó B(ull)S(hit):

"Notkun einkabíls er mikil á höfuðborgarsvæðinu og nýting strætó minni en víða í borgum nágrannalanda.  Almenningsvagnaþjónusta er hluti af nútíma borgarsamfélagi og vandséð að nokkur byggðahluti í þéttbýli geti án hennar verið. Því er mikilvægt að boðin sé þjónusta, sem veitir íbúum úrlausn um flutningsþörf, en jafnframt sé gætt nauðsynlegrar hagkvæmni.  Mikilvægt í þessu samhengi er skipulag leiðakerfisins og forgangur í umferð. 

Markmiðin eru að efla almenningssamgöngur, bæta þjónustu og auka hagkvæmni."

 Og hvernig fara forsvarsmenn Strætó að þessu? Nú, með því að hækka verð, fækka ferðum og stokka upp leiðakerfið á nokkurra mánaða fresti, svo það sé nú öruggt að enginn viti hvert vagnarnir fara eða hvenær.

"Strætó bs. er í eigu Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar, Hafnarfjarðarbæjar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarneskaupstaðar og Sveitarfélagsins Álftaness."

Ef farið er inn á síðu Reykjavíkurborgar er þar að finna (undir "Umhverfi og samgöngum") síðu titlaða "Strætó". Þar kemur eftirfarandi fram:

 

 

 

 

 

 

 

 

Já, þarna stendur ekki einn einasti stafkrókur, enda sjálfsagt óþarfi.

Á heimasíðu Kópavogsbæjar er að finna upplýsingar um þær leiðir sem ganga innan bæjarfélagsins, Hafnarfjarðarbær vísar á www.bus.is, en gefur líka upplýsingar um aðra möguleika, Garðbæingar telja upp leiðirnar, en gefa litlar viðbótarupplýsingar, hjá Mosfellsbæ hafa upplýsingar um strætó ekki verið uppfærðar síðan síðustu breytingar urðu, og Seltirningar minnast ekki einu orði á strætó, nema til að nefna aðal- og varafulltrúa sína. Miðað við áðurnefndar síður er Álftanesvefurinn hrein hátíð, en þar er a.m.k. að finna tímatöflu fyrir þennan eina vagn sem gengur um nesið.

Á www.visitreykjavik.is er að finna sorglega úreltar upplýsingar um strætó.

 

Á www.mbl.is tókst mér (eftir nokkra leit) að finna eftirfarandi upplýsingar;

"EKIÐ verður á öllum leiðum Strætó bs. á 30 mínútna fresti frá 3. júní og fram til 18. ágúst í sumar. Núna aka allar leiðir, utan leiðar 23 á Álftanesi, á 20 mínútna fresti.


 

EKIÐ verður á öllum leiðum Strætó bs. á 30 mínútna fresti frá 3. júní og fram til 18. ágúst í sumar. Núna aka allar leiðir, utan leiðar 23 á Álftanesi, á 20 mínútna fresti. Í tilkynningu frá byggðasamlaginu segir að ástæður þessa séu 40–50% fækkun farþega á sumrin vegna skólaleyfa og sumarorlofa og ákveðnar sparnaðarkröfur frá eigendum Strætós bs. Breytingarnar byggist á umfangsmiklum talningum frá haustinu 2006 og vorinu 2007. Strætó bs. segir einnig að erfitt sé að fá sumarafleysingafólk til starfa eins og nánast alls staðar annars staðar á landinu.

Frá og með 19. ágúst í sumar munu valdar leiðir aka á 15 mínútna fresti. Segir í tilkynningu Strætós bs. að nokkrar af þessum völdu leiðum muni aka á 15 mínútna fresti allan daginn en aðrar á annatímum.

Komið verði til móts við óskir um betri tengingar innan hverfa í Grafarvogi, Grafarholti/Árbæ, Kópavogi og Hafnarfirði."

Eftirfarandi kom fram á www.visir.is  ;

 "Þjónusta Strætó verður skert í sumar og munu vagnar fyrirtækisins aka á hálftíma fresti frá 3. júní til 18. ágúst. Skerðingin kemur til vegna sparnaðar, farþegafækkunar og manneklu.

Leið 16 verður lögð niður en tvær nýjar hringleiðir teknar upp í Grafarvogi. Leiðir 25 og 26 í Kópavogi verða einnig lagðar niður en tvær nýjar koma í staðinn. Þá verða kynntar tvær nýjar leiðir í Hafnarfirði en leið 21 verður lögð niður.

„Þetta er vissulega þjónustuskerðing. Við teljum hins vegar að við bætum þetta upp með betri þjónustu úti í hverfunum," segir Einar og bætir því við að það þekkist víðast hvar í Evrópu að þjónusta sé skert yfir sumartímann.

„Þessar breytingar byggja á talningum sem fóru fram haustið 2006 og nú í vor. Farþegafjöldinn er alltaf meiri á veturna en sumrin enda er stór hluti okkar farþega skólafólk," segir Einar."

Árangurslaus gúglun staðfesti grun minn endanlega; hvergi er að finna nánari upplýsingar. Ég hafði vonast til að fá svör við eftirfarandi spurningum;

a) Verður sama 30-mínútna tímatafla í notkun?

b) Er ekki allt í lagi í hausnum á þessu liði?

c) Nei, í alvöru, er þetta ekki bara djók?

---

Þegar Akureyringar ákváðu að gera almenningssamgöngur gjaldfrjálsar jókst notkunin um 60%. Forsvarmenn Strætó BS tilkynntu stoltir að aukningin hjá þeim hefði verið innan við 4% eftir síðustu breytingar.

Ég endurtek fyrra röfl; hverjum dettur í hug að bjarga fyrirtæki úr fjárhagsvanda með því að minnka þjónustu og hækka verð?

-----

Gerum ráð fyrir að heimilisbíllinn eyði 5 lítrum/100 km og lítrinn af bensíni kosti 120 krónur. Ef við reiknum bara með eldsneytiskostnaði (og sleppum öllum trygginga/skoðunar/viðhaldspakkanum), kemur í ljós að ef ferðast á lengra en til Þorlákshafnar og til baka, margborgar sig að taka strætó. Annars er heimilisbíllinn betri fyrir budduna.

Svo má auðvitað ekki gleyma því að tíminn er peningar. Ef ætlunin er að vera kominn að Reykjavíkurflugvelli klukkan 9 á laugardagsmorgni, frá Landakoti, gefur "ráðgjafinn" á síðu Strætó BS upp áætlaðan ferðatíma upp á níutíuogtvær mínútur. (Þessi svokallaði "ráðgjafi" er auðvitað efni í enn lengri nöldurpistil).

 

---

Ég segi þetta oft, en fjandinn hafi það, eitt skipti enn getur varla sakað;

Ég gefst upp. Það er ekki líft í þessu fjandans landi lengur.

 


mbl.is Mikil óánægja meðal vagnstjóra hjá Strætó bs. um breytingar á vaktakerfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sæunn Valdís

afhverju flyturu ekki bara norður? hér er fínt að búa og frítt í strætó :D 

Sæunn Valdís, 30.5.2007 kl. 11:48

2 Smámynd: Þarfagreinir

Bah. Bjánar. Aldrei ofsögum sagt að öll hugmyndafræðin í kringum strætisvagna hér í borg, var, er, og mun líklega alltaf vera argasta kjaftæði.

Þarfagreinir, 30.5.2007 kl. 13:48

3 Smámynd: Sigurjón

Það er ekkert annað eftir en að flytja.

Sigurjón, 30.5.2007 kl. 18:17

4 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Ég veit að það er á Álftanesi. Tekur það þig 90 mínútur að aka frá Álftanesi að flugvellinum?

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 30.5.2007 kl. 18:49

5 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Það er einmitt málið. Hérlendis er það ekki möguleiki. Og hversu mikinn farngur þarftu ef þú ætlar í helgarferð til Akureyrar? Það tekur lengri tíma að komast á flugvöllinn en að fljúga´.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 30.5.2007 kl. 19:50

6 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Ég nota alltaf lest/strætó í Danmörku, enda er það mun þægilegra og ódýrara en leigubílar, jafnvel þó maður sé með tíu kílóa ferðatösku í eftirdragi. Þar nefnilega virka almenningssamgöngurnar.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 30.5.2007 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Kverúlant

Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Lestu bara helvítis bloggið, minn karakter kemur þessu ekkert við.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...!
  • Untitled

Bækur

Nýlesið/eftirlæti

  • Mark Steel: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian
    Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
    *****
  • Gregory Maguire: Mirror, Mirror
    Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
    ****
  • Ýmsir: Lonely Planet: Europe on a shoestring (ISBN: 1740597796 )
    Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
    ***

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband