Ég er ástfangin.

...og það af tveimur manneskjum í einu.

Annarsvegar Nönnu R. eftir að ég las bloggfærslu hennar um matarboð og sá þennan matseðil (ég vona að hún kæri ekki ritstuldinn);

grafið kindafillet/límónumaríneruð hörpuskel/kúskús með basilíku og arganolíu
Castell de Villarnau cava

hráskinka með þurrkuðum perum og klettasalati

pistasíu-risarækjur með lárperumauki
Torres Esmeralda

kornhænusúpa með smjördeigsstöngum

andabringusalat með klettasalati og granateplafræjum
Francois d’Allaines pinot noir

skötuselur með sætkartöflustöppu og paprikumauki
Emporio frá Sikiley

nautalund með portobello- og kastaníusveppum, ofnsteiktu grænmeti og sósu
Castello di Querceto Chianti Classico

fjórir ostar
púrtvín

þrílitar súkkulaðiísrósir með hindberjasósu

kaffi og konfekt
Calvados, koníak og Pedro Ximenes

 

Og hinsvegar Gene Wilder. Ég var sumsé að komast að því að fíni mynddiskurinn sem ég festi kaup á í Tiger (borið fram tíer, ekki tægör. Dönsk búð. Þar sem allt kostaði tíer. Skilurðu?) er ekki Lísa í Undralandi frá sextíogeitthvað með Peter Sellers og Dudley Moore eins og stendur á hylkinu, heldur Lísa í Undralandi frá nítíogníu með Gene Wilder og Whoopi Goldberg og Martin Short og fleiri vanmetnum leikurum.

 

Pissustopp; Hvernig dettur nokkrum manni í hug að auglýsa Mixed Nuts (snilldarmynd) með því að nefna að Steve Martin (sem er þrátt fyrir allt nokkuð sæmilegur leikari) hafi leikið í Ódýrari í tylftum? Hversvegna ekki að nefna Dauðir menn ganga ekki í Kórónafötum, Þrjá vini, Fíflið eða Húspíuna? Þetta eru allt góðar aulahúmorsmyndir (DmgeíK þó langbest, sérstaklega ef áhorfandinn hefur áhuga á film noir). Tala ekki um Novocaine, sem er einmitt síðasta verulega góða (góð lýsir henni ekki nógu vel. Mig skortir orð. Þessi mynd er frábær í alla staði) myndin sem hann lék í.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hmm.. tíer.. töff, vissi það ekki.. ég á örugglega samt eftir að halda áfram að segja tiger.. bara vani.. en samt... tíer.. hehehehe

Dexxa (IP-tala skráð) 4.12.2007 kl. 22:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Kverúlant

Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Lestu bara helvítis bloggið, minn karakter kemur þessu ekkert við.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...!
  • Untitled

Bækur

Nýlesið/eftirlæti

  • Mark Steel: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian
    Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
    *****
  • Gregory Maguire: Mirror, Mirror
    Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
    ****
  • Ýmsir: Lonely Planet: Europe on a shoestring (ISBN: 1740597796 )
    Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
    ***

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband