Oj bara

Forræðishyggjan er aldeilis með kommbakk þessi árin. "Sem betur fer" einbeitir íslenska vinnueftirlitið sér að mikilvægari hlutum - enn sem komið er.

 

Mér finnst alltaf jafn ótrúlegt hversu margir eru tilbúnir til að fórna frelsinu fyrir ímyndaðan málstað, svo lengi sem það er ekki þeirra eigin frelsi. Reykingamenn fá að dúsa úti í kuldanum, því þeir eru hvort eð er að eitra fyrir fólki.

Hvernig fyndist þessu fólki ef eitthvað af þeirra frelsi hyrfi?

Akstur bifreiða yrði bannaður þar sem mengunin af þeim er of mikil. Útblástur drepur!  Fólk mætti þó að sjálfsögðu enn kaupa bíla.

Hljómleika má ekki halda nema meðaltalshljóðstyrkur sé undir 85 db, enda getur meiri hávaði valdið heyrnarskemmdum. Það er réttur allra að vinna á hljóðlátum stað, hvort sem viðkomandi vill vinna í kirkju eða á dauðarokksklúbbi.

 Barnaverndarnefnd ætti að virka svipað og Tóbaksverndarnefnd: vernda fólk fyrir börnum. Það að sitja við hliðina á organdi krakka á veitngastað er óþolandi - veldur nánast geðveilu. Þessvegna er augljóst að ekki má hleypa nokkrum einstaklingi undir tólf ára inn á veitingastað eða aðra opinbera staði. Það sama gildir um hnerrandi og hóstandi gamalmenni, bjakk!

Fólk skal skikkað til að þvo sér vandlega um hendur eftir salernisferðir - a.m.k. á opinberum stöðum. Best væri að skipa sérstakan hóp innan lögreglunnar til að hafa eftirlit með þessu.

Of mikið sjónvarpsgláp getur komið af stað mígreni- eða flogakasti. Þess vegna má ekki lengur hafa kveikt á sjónvörpum, t.d. í raftækjaverslunum, á börum eða öðrum opinberum stöðum. Þau verða þó enn til sölu, enda má fólk nota þau innan veggja heimilisins enn sem komið er.

 

Nágranni minn fékk lánaðan vasareikni rétt í þessu. Hún þurfti að reikna út hvað 400 sinnum tíu er. Þess vegna  legg ég til að rosalega heimskt fólk verði bannað.

 

 

 

 


mbl.is Margir brjóta reykingalög
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ja.. mér finnst allt í lagi að banna reykingar á opinberum stöðum, ég reyki ekki og þar af leiðandi hef ég engan áhuga á því að þessu að mér... en það á ekki að taka tíma frá lögreglunni út af því að fólkið sem starfar á þessum stöðum getur ekki séð um þetta sjálft..

Dexxa (IP-tala skráð) 8.1.2008 kl. 14:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Kverúlant

Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Lestu bara helvítis bloggið, minn karakter kemur þessu ekkert við.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...!
  • Untitled

Bækur

Nýlesið/eftirlæti

  • Mark Steel: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian
    Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
    *****
  • Gregory Maguire: Mirror, Mirror
    Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
    ****
  • Ýmsir: Lonely Planet: Europe on a shoestring (ISBN: 1740597796 )
    Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
    ***

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 3060

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband