Kreppa schmeppa

Hver getur útskýrt fyrir mér hvers vegna kjúklingabringur eru svona fáránlega dýrar? Ég skrapp út í Krónu áðan og var við það að grípa bakka af ferskum kjúklingabringum þegar mér varð litið á kílóverðið. 3000 krónur fyrir kjúklingabringur! Ég get keypt mér kjúklingabringur á Holtinu fyrir 3000 kall. Þrjúþúsund íslenskar krónur fyrir tútturnar af tveimur og hálfri hænu! Til gamans kíkti ég á tilboðsblaðið frá Superbest og á forsíðunni blöstu einmitt við mér kjúklingabringur. Sunnudagstilboð á kjúklingabringum: 79 danskar krónur fyrir 1200 grömm af ferskum kjúllatúttum. Meira að segja á ofurgengi dagsins í dag eru þetta ekki nema rétt rúmar þúsund íslenskar kílóið. 

Danskir kjúklingar eru greinilega bara matgrennri en hinir skerversku því ég rakst á frosnar baunskar júllur á 1600 krónur kílóið. Ég keypti þær því, að sjálfsögðu.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Að sjálfsögðu geng ég með fína Burberry klútinn um hálsinn. Hann passar svo vel við dragtina sem ég keypti hjá Laxdal um daginn - og maður verður nú að passa hálsinn. Svo er ég farin að reykja Chesterfield, það er svo dannað.

Engar áhyggjur, ég festist einhversstaðar í sumar...þroski schmroski.

Keli: Hér eftir er þér bannað að tjá þig um matarverð í útlöndum. Það gerir mig sorgmædda. Og svanga.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 7.4.2008 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Kverúlant

Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Lestu bara helvítis bloggið, minn karakter kemur þessu ekkert við.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...!
  • Untitled

Bækur

Nýlesið/eftirlæti

  • Mark Steel: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian
    Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
    *****
  • Gregory Maguire: Mirror, Mirror
    Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
    ****
  • Ýmsir: Lonely Planet: Europe on a shoestring (ISBN: 1740597796 )
    Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
    ***

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (12.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 3042

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband