That's IT!

Fari þetta land fjandans til! Allt er farið á hausinn, þeir sem mótmæla öðruvísi en með gagnslausum ræðuhöldum í skítakulda fá drulluna yfir sig, veðrið sökkar, atvinnulausum fjölgar um 260 á dag - og lausn ráðamanna? Nefskattur, hækkun á áfengi og tóbaki, niðurskurður í heilbrigðis- og menntakerfum og ekkert gert til að hjálpa þeim verst stöddu. Öryrkjar og aldraðir ná ekki endum saman frekar en áður - enn síður núna þegar allt hækkar.

Mæðró og fjölskylduhjálpin hafa ekki undan - í gær var fólki vísað frá Fjölskylduhjálpinni, mörgum eftir allt að fjögurra tíma bið í rigningarsudda, vegna þess að yfir 300 manns voru mættir fyrir utan. Þeim sem ekki höfðu sótt um sérstaka jólaúthlutun var sagt að koma aftur næsta þriðjudag og sækja um svo þeir gætu fengið úthlutað næsta miðvikudag. Fólk sem leitar til svona staða er ekki endilega í aðstöðu/ástandi til að standa úti í öllum veðrum, marga klukkutíma í senn upp á von og óvon - og þetta er ekki eitthvað sem fólk gerir upp á djókið. Margir gáfust upp vegna þess að þeir sáu fram á að komast ekki til að sækja börn á leikskóla og það er ekki skemmtileg ákvörðun - annaðhvort gefst ég upp og á þá ekki mat fyrir barnið mitt næstu vikuna eða læt barnið dúsa á leikskólanum til sex í kvöld. Einhverjir voru að koma úr vinnu og fengu að vita að þeir væru númer 287 í röðinni, en verið að afgreiða númer 40-50. Þetta er ekki skemmtun.

 

Ef ég hefði efni á því, myndi ég flytja úr landi - en samkvæmt Þeim Sem Öllu Ráða á ég að lifa af á 50.000 krónum á mánuði - vegna þess að ég bý "heima hjá mömmu". Ég bý ekki "heima" mikið lengur ef mömmu er hent út vegna þess að ég get ekki borgað minn hluta af útgjöldunum. Ekki nóg með að ég eigi að lifa í mínus þar til ég finn nýja vinnu (eins og framboðið er mikið akkúrat núna) heldur voga þeir sér að úthluta mér 16.000 krónum fyrir desember. Sextánþúsund skitnum fokking krónum! Hversvegna? Jú, ég fékk of mikið greitt fyrsta nóvember - nánar tiltekið 102.890 fyrir skatt. Eftir skatt átti ég 76.169 krónur - sem ég átti, samkvæmt hinum alvitru, að skipta í tvennt og nota seinni helminginn í næsta mánuði. "Svona eru bara reglurnar."

 

Ég gef skít í þetta land.

Mótmælum eins og skríllinn sem við erum álitin vera; klifrum upp á þær byggingar sem við viljum, neitum að borga skatta sem fara í annað en grunnþjónustu, hökkum okkur inn á reikninga ráðherra og millifærum á hjálparstofnanir, bruggum okkar eigin bjór og landa, görgum á pöllunum á Alþingi þangað til við erum blá í framan svo pakkið þar inni geti ekki gert okkur fleiri "greiða", reykjum gras fyrir framan lögguna  - gerum það sem okkur dettur í hug, það verður hvort eð er ekki líft í þessu landi mikið lengur.


mbl.is Áfengisgjald hækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Hvenær kemur að því að búa til hinn íslenska bastilludag? Það er ekki nóg að egja á torgi. Það hlustar enginn á þá sem þegja.

Villi Asgeirsson, 12.12.2008 kl. 08:30

2 Smámynd: Sleggjan

Thats it , segiji það með þer

Sleggjan, 12.12.2008 kl. 08:42

3 Smámynd: J. Einar Valur Bjarnason Maack

Damn...

...já.

That's it.

J. Einar Valur Bjarnason Maack , 12.12.2008 kl. 11:33

4 identicon

Sæl Tinna.

Gamanlaust er þetta hrikaleg staða hjá þér,

 eins og svo mörgum í dag. Ég og fleiri erum að spyrja okkur, Hvað er raunverulega hægt að gera til þess að hinir aumustu geti aðeins rétt úr sér. Og ég er enn að hugsa.

Ekki gefast upp Tinna.

 þá vinnur Ríkisstjórnin,

Þraukaðu og einn góðan veðurdag er þessi "Horror" búinn.

Kær kveðja.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 12.12.2008 kl. 13:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Kverúlant

Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Lestu bara helvítis bloggið, minn karakter kemur þessu ekkert við.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...!
  • Untitled

Bækur

Nýlesið/eftirlæti

  • Mark Steel: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian
    Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
    *****
  • Gregory Maguire: Mirror, Mirror
    Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
    ****
  • Ýmsir: Lonely Planet: Europe on a shoestring (ISBN: 1740597796 )
    Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
    ***

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 18
  • Frá upphafi: 3005

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband