Gagg

Jeminn eini! Fyrst átti að eyðileggja hjónabandið og banna fólki að skíra börnin sín* og nú má ekki einu sinni lemja þau lengur! Fólk virðir ekki  hinn heilaga eignarrétt  og vogar sér svo að gagnrýna lögregluna fyrir það eitt að dangla í nokkra skítuga hippa! Ekki nóg með það, heldur er allskonar glæpamönnum hleypt hér inn í þokkabót!

 

Þetta land er klárlega á leið beint til andskotans!

 

 

*Ég finn ekki hneykslunarblogg Guðrúnar Sæm um þetta mál. Ekki getur verið að kerlingartuðran hafi eytt því? Var það kannske aldrei til?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurjón

Þetta land er á leið til andskotans ef við trúum að svo sé.  Ekki er ég einn af þeim, hvorki nú nér fyrr.

Þetta lið sem þú bendir á dæmir sig nokkuð augljóslega sjálft Tinna mín.  Fyrir meðalgreindan mann þarf ekki annað en að lesa í nokkrar mínútur þessar færzlur til að sannfærazt um að hér er á ferðinni nokkuð steikt fólk.

Þú ættir frekar að eyða tíma í að birta gáfulegar færzlur um lesefnið þitt á hverjum tíma eða greinar af vísindavefnum.  Alla vega frekar en að vera alltaf að eltast við þetta misgáfaða lið.  Hef ég rangt fyrir mér?

Sigurjón, 18.4.2009 kl. 02:05

2 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Líttu svona á þetta: sama hversu skítt lífið er, ertu a.m.k. ekki jafn mikið fífl og JVJ eða Guðrún Sæm. Þetta er í raun afskaplega upplífgandi.

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 18.4.2009 kl. 02:28

3 Smámynd: Sigurjón

Satt er það, en líttu á þetta á enn einn veg:

Í stað þess að lesa færzlur þessa fólks, gætir þú verið að lesa góðar bækur, eða vísindavefinn (eða Wikipediu)!  Það væri svo miklu betra í alla staði...

Ég vil miklu frekar lesa færzlur eftir þig í kjölfar lesturs á einhverjum gáfulegum ritum í stað einhverra misgáfulegra vefbóka...

Skilurðu hvað ég er að fara? Mér finnst þú eyða góðum gáfum í ógáfulegt fólk.

Sigurjón, 18.4.2009 kl. 02:43

4 identicon

ertu a.m.k. ekki jafn mikið fífl og JVJ eða Guðrún Sæm.  

Verður Mofi ekki móðgaður ef þú skilur hann útundann? ;)  

Einar Þór (IP-tala skráð) 18.4.2009 kl. 10:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Kverúlant

Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Lestu bara helvítis bloggið, minn karakter kemur þessu ekkert við.
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...!
  • Untitled

Bækur

Nýlesið/eftirlæti

  • Mark Steel: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian
    Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
    *****
  • Gregory Maguire: Mirror, Mirror
    Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
    ****
  • Ýmsir: Lonely Planet: Europe on a shoestring (ISBN: 1740597796 )
    Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
    ***

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband