11.7.2007 | 11:31
Hæ Ísland!
Ég ætladï ad skrifa eitthvad voda gáfulegt um Hróa, en...hvad get ég sagt? Engin ord geta lýst Hróa. Svo ég læt mér nægja ad skrifa handahófskenndar hugleidingar:
Ég elska Wayne Coyne. Eru kannske edlileg vidbrögd vid Flaming Lips tónleikum ad slefa yfir honum? Í marga daga? Og heyra Do You Realize á continuous loop í höfdinu á sér? Madurinn er bara...bara...bara...svo...*slef*. Flaming Lips fá fimm stjörnur, Wayne Coyne fær sál mína.
The Who eru ædi. Af hverju er ekki búid ad fullkomna tímaferdalög svo ég geti farid á tónleika med theim öllum? Og hvernig er heimurinn ordinn thegar fleiri vilja sjá Red Hot Crap Ass Chili Peppers en The Who!? Roger Daltrey og Pete Townshend fá fimm stjörnur.
RHCACP voru ágætir einusinni, en thetta nýja drasl er bara ekki ad gera sig, og tónleikarnir sökkudu. Thad er ekkert annad ord yfir thá. Reyndar var ég sofandi mestallan tímann, en thad segir meira en mörg ord. Thad á ekki ad vera hægt ad sofa á svona tónleikum. RHCP fá stórt feitt NÚLL.
The National eru überkül. Of course, I already knew that. Ég féll í trans thegar their tóku Fake Empire. Og djöfulli geta mennirnir rokkad! Kick-ass tónleikar - en mínus ein stjarna fyrir hljódid.
Spiritualized er líka sweet-ass, en ég fíla Spaceman samt eiginlega betur plugged-in en acoustic. Samt - fimm stjörnur.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2007 | 02:22
T minus 26:50
Ég legg sumsé af stað klukkan tíu mínútur yfir fimm á föstudagsmorgun, en þá stíg ég upp í hina margfrægu flugrútu, sem flytja mun mig að Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Flug FHE-901 tekur þar við, og skilar mér vonandi heilu og höldnu á brautina við Kastrup. Þaðan stekk ég svo um borð í lest og held inn í miðborg Kaupmannahafnar. Ætlunin er að hitta Gullý á Hovedbane, drösla farangri heim til Söru, og vingsast svo eitthvað þar til daginn eftir, en þá tökum við lest upp til smábæjarins Roskilde, en hann er á mörkum hins byggilega heims. Eftir aðra heiðarlega tilraun til að finna Domino's-útibúið sem samkvæmt fornri munnmælasögu á þar að finnast, gefumst við upp og étum eitthvað annað. Eftir innkaupaleiðangur stökkvum við upp í taxa og brunum sem leið liggur að austurhliði hátíðarinnar, þar sem kvöldið líður við bjórdrykkju og veðurfarsumræður. Um miðnætti fáum við síðan afhent (eða áhent) armbönd, og bæklinga sem við skoðum af áfergju. Klukkan átta á sunnudagsmorgun opnast svo hliðin, og við rjúkum eins og eldibrandar að svæði B, þar sem við sláum upp tjaldbúðum. Svo...æ...þúst...bra...verðum við fullar og vitlausar næstu daga, sjáum Arctic Monkeys og Killers og The Who og fleira, étum kettlingasamlokur, förum í leðjuslag, kvörtum undan veðrinu, Björk og gaurnum sem blastar norskt rapp alla nóttina, týnumst, finnumst, o.s.frv, o.s.frv.
Siðan er það ein eða tvær nætur í Köben til að fara í sturtu og slappa af áður en ég rýk til Hamborgar. Jei.
Sögur af þessu öllu saman verður síðan að finna hér. Þ.e.a.s. um leið og ég kemst til að skrifa þær.
Að lokum vil ég gubba nokkrum tilvitnunum á ykkur, þar sem ég sjálf er bara ekki næstum því nógu skapandi akkúrat núna:
Travel is fatal to prejudice, bigotry, and narrow-mindedness, and many of our people need it sorely on these accounts. Broad, wholesome, charitable views of men and things cannot be acquired by vegetating in one little corner of the earth all one's lifetime.
-Mark Twain
"Stripped of your ordinary surroundings, your friends, your daily routines, your refrigerator full of food, your closet full of clothes - with all this taken away, you are forced into direct experience. Such direct experience inevitably makes you aware of who it is that is having the experience. That's not always comfortable, but it is always invigorating."
-Michael Crichton
"Travelling is a brutality. It forces you to trust strangers and to lose sight of all that familiar comfort of home and friends. You are constantly off balance. Nothing is yours except the essential things - air, sleep, dreams, the sea, the sky - all things tending towards the eternal or what we imagine of it."
-Cesare Pavese
"There may be nothing sadder than people who spend their lives talking about what might have been."
-Anonymous
![]() |
Hvað skal borða á útihátíð? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
25.6.2007 | 23:38
Æ. Var ekki hægt að orða þetta öðruvísi?
"aldrei fyrr hafa svo margir Svíar verið giftir sömu manneskjunni."
Hver er þessi manneskja?
![]() |
Svíar haldast lengst allra í hjónabandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
24.6.2007 | 05:25
Kommon!
![]() |
Fundu pyntingaklefa al-Qaeda í Írak |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
22.6.2007 | 03:29
Alvara vs. Teoría
Ef einhver sem ég væri að spjalla við færi að tala um rokkstjörnu sem notaði frægðina til að vekja athygli á fátækt og skuldum þriðja heims ríkja, talaði reglulega við páfann, og væri á "first name basis" við Bandaríkjaforseta, fyndist mér það örugglega kúl.
Ég hata samt Bono. Ég veit ekki hvers vegna. Í teóríu finnst mér þetta voða kúl, en í alvöru...þetta er Bona. Ef hann vildi í alvöru breyta einhverju, af hverju gefur hann ekki sínar eigin milljónir? Maðurinn hefur alveg efni á því.
Mig langar að segja að ég myndi nýta mínar milljónir -ef ég ætti þær- í eitthvað merkilegt. Gæfi kannske 80-90-% til góðgerðastarfsemi...en ég myndi ábyggilega kaupa mér höll við hliðina á Bono.
Hann fer samt í taugarnar á mér. Segið mér að ég sé ekki ein...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.6.2007 | 15:05
Já, já, bla, bla, bla.
Bíðið bara þangað til í vetur! Ég sé ekki fram á að nenna að standa fyrir utan Vín í fimm stiga frosti, roki og snjó, það er varla að ég nenni því núna. Enda hefur ferðum mínum þangað fækkað svo um munar, og þó eru ekki nema rúmar tvær vikur síðan bölvaðir fasistarnir fengu sínu framgengt.
Í öðrum fréttum er það helst að ég hitti nasista í gær. Á Vín var sumsé einhver þýzkur sjóliði að röfla, og hann sagði mér í óspurðum fréttum að hann væri nassjónal-sósjalist, en hefði samt sko ekkert á móti pönkurum. Merkilegast þótti mér þó að hann skyldi bölva hommum í sand og ösku, án þess að sjá neitt athugavert við það aað hafa rekið tunguna ofan í kok á einum slíkum innan við fimm mínútum áður. Vitleysingur.
![]() |
Aðsókn óbreytt þrátt fyrir reykingabann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.6.2007 | 11:49
Öppdeit
Nú heldur helvítis fíbblið því fram að vinur hans hafi bara verið að djóka. Er hægt að kæra fólk fyrir að hafa lélegan húmor? "Þú ert dópisti og spilafíkill og ég lem konuna mína, haha!" Voða fyndið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.6.2007 | 01:11
8/27
Já, ég er sumsé komin með gistingu á átta af þeim 28 stöðum þar sem ætlunin er að stoppa í eina eða fleiri nætur. Staðirnir sem búið er að staðfesta eru;
København/Roskilde (29. 6.-10. 7.)
Hamburg (10.-11.)
Amsterdam (11.-13.)
Jena (16.-17.)
Dresden (17.-18.)
Berlin (18.-20.)
Kraków (23.-25.)
Budapest (28.-29.)
---
Enn hafa ekki borist svör frá
Paris (13.-14.7./6.-7.8.)
Köln (14.-15.)
Lëtzebuerg (15.-16.)
Poznań (20.-21.)
Warszawa (21.-22)
Lublin (22.-23.)
Praha (25.-26.)
Wien (26.-27.)
Bratislava (27.-28.)
Bucureşti (29.-30)
Бургас (30.-31.7.)
Thessaloniki (31.7.-1.8.)
Athína (1.-2.)
Sarajevo/Banja Luka (2.-3.)
Zagreb (3.-4.)
Roma (4.-6.)
Og þar sem ég er en ekki búin að senda fyrirspurnir um eftirfarandi (enda nokkrir dagar eftir til ráðstöfunar), er ekkert ákveðið á eftirfarandi stöðum, þó ég ætli mér að heimsækja þá undir ferðalok;
London
Béal Feirste
Baile Átha Cliath
Dùn Èideann
--------
Hvernig líst ykkur svo á?
Bloggar | Breytt s.d. kl. 01:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.6.2007 | 10:20
Vér Skipuleggjum.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.6.2007 | 18:33
Kveðjubréf
Þá er það opinbert: Lífi mínu er lokið. Það er uppselt á Hróa. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast mín er bent á að myrða félagsráðgjafa að eigin vali. Takk fyrir.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Tenglar
Gamalt tuð
- Blókarspotti Hróa Hróaábendingar
- Blókarspotti Dautt blogg
- Fólk er fífl.is Dautt blogg
- FerðaBlogg Á lífi - fylgist með
- MittSvæði
- Lifandi dagbók Í andarslitrunum
Bloggvinir
-
malacai
-
pannan
-
stutturdreki
-
skrekkur
-
einarsmaeli
-
aulinn
-
furduvera
-
fsfi
-
valgeir
-
gregg
-
gurrihar
-
zeriaph
-
hvilberg
-
hallurg
-
rattati
-
heidar
-
hexia
-
himmalingur
-
hjaltirunar
-
disdis
-
jevbmaack
-
jakobk
-
changes
-
prakkarinn
-
jonthorolafsson
-
andmenning
-
ugluspegill
-
miniar
-
mist
-
hnodri
-
reputo
-
robertb
-
runavala
-
sigmarg
-
sigurjon
-
shogun
-
nimbus
-
skastrik
-
svanhvitljosbjorg
-
stormsker
-
kariaudar
-
zion
-
tara
-
taraji
-
texi
-
thelmaasdisar
-
torfusamtokin
-
toshiki
-
tryggvienator
-
upprifinn
-
vga
-
vest1
-
fingurbjorg
-
gummih
-
kiza
-
kreppukallinn
-
krossgata
-
isdrottningin
-
nosejob
-
olafurfa
-
tharfagreinir
-
thorgnyr
-
valli57
-
apalsson
-
skagstrendingur
-
partialderivative
-
biggihs
-
bjorn-geir
-
dingli
-
einarjon
-
glamor
-
breyting
-
gthg
-
sveinnelh
-
hehau
-
hordurt
-
kt
-
omnivore
-
olijon
-
styrmirr
-
lalamiko
-
thorrialmennings
Bækur
Nýlesið/eftirlæti
-
Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian -
Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
: Mirror, Mirror -
(ISBN: 1740597796 )
Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
: Lonely Planet: Europe on a shoestring
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.5.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 5
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar