1.6.2007 | 15:44
Fari það í heitasta hoppandi helvíti!
Hreppanefn - ég meina Félagsmál- nei, Félagsþjónu- nei, afsakið; Þjónustumiðstöð Laugardals og Háaleitis er ömurlegt fyrirbæri.
Þau týndu læknisvottorðinu mínu, "ráðgjafinn" minn hefur ekki verið tiltækur í tvo mánuði, og stlputrippið sem ég talaði við rétt áðan gubbaði út úr sér frábærri setningu þegar ég spurði hvað væri eiginlega í gangi; "Það verður að gera eitthvað til að stoppa ykkur"!
Er hún að gefa í skyn að þau hafi viljandi "týnt" vottorðinu til a þurfa ekki að greiða mér? Eða meinar hún þetta svona eins og ofurhetjurnar; "We must do something to stop the Triffids"?
Svo heimta þau nýtt vottorð - en læknirinn minn er bara við á mánudögum og þriðjudögum- og staðfestingu á að ég hafi greitt húsaleigu. Sem er dálítið erfitt. Þegar allt er svart. *AHEM*
Og ég get enn ekki keypt Hróamiðann. Ef þetta verður til þess að ég komist ekki á Hróa, skal ég sprengja þetta helvítis pakk í loft upp, allt með tölu! Nema kannske Heimi...hann er víst að vinna þarna...ég vona bara að ég rekist ekki á hann.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.5.2007 | 19:30
Merkilegasti Íslendingurinn?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.5.2007 | 04:45
Strætó sökkar.
Glefsa af heimasíðu Strætó B(ull)S(hit):
"Notkun einkabíls er mikil á höfuðborgarsvæðinu og nýting strætó minni en víða í borgum nágrannalanda. Almenningsvagnaþjónusta er hluti af nútíma borgarsamfélagi og vandséð að nokkur byggðahluti í þéttbýli geti án hennar verið. Því er mikilvægt að boðin sé þjónusta, sem veitir íbúum úrlausn um flutningsþörf, en jafnframt sé gætt nauðsynlegrar hagkvæmni. Mikilvægt í þessu samhengi er skipulag leiðakerfisins og forgangur í umferð.
Markmiðin eru að efla almenningssamgöngur, bæta þjónustu og auka hagkvæmni."
Og hvernig fara forsvarsmenn Strætó að þessu? Nú, með því að hækka verð, fækka ferðum og stokka upp leiðakerfið á nokkurra mánaða fresti, svo það sé nú öruggt að enginn viti hvert vagnarnir fara eða hvenær.
"Strætó bs. er í eigu Reykjavíkurborgar, Kópavogsbæjar, Hafnarfjarðarbæjar, Garðabæjar, Mosfellsbæjar, Seltjarnarneskaupstaðar og Sveitarfélagsins Álftaness."
Ef farið er inn á síðu Reykjavíkurborgar er þar að finna (undir "Umhverfi og samgöngum") síðu titlaða "Strætó". Þar kemur eftirfarandi fram:
Já, þarna stendur ekki einn einasti stafkrókur, enda sjálfsagt óþarfi.
Á heimasíðu Kópavogsbæjar er að finna upplýsingar um þær leiðir sem ganga innan bæjarfélagsins, Hafnarfjarðarbær vísar á www.bus.is, en gefur líka upplýsingar um aðra möguleika, Garðbæingar telja upp leiðirnar, en gefa litlar viðbótarupplýsingar, hjá Mosfellsbæ hafa upplýsingar um strætó ekki verið uppfærðar síðan síðustu breytingar urðu, og Seltirningar minnast ekki einu orði á strætó, nema til að nefna aðal- og varafulltrúa sína. Miðað við áðurnefndar síður er Álftanesvefurinn hrein hátíð, en þar er a.m.k. að finna tímatöflu fyrir þennan eina vagn sem gengur um nesið.
Á www.visitreykjavik.is er að finna sorglega úreltar upplýsingar um strætó.
Á www.mbl.is tókst mér (eftir nokkra leit) að finna eftirfarandi upplýsingar;
"EKIÐ verður á öllum leiðum Strætó bs. á 30 mínútna fresti frá 3. júní og fram til 18. ágúst í sumar. Núna aka allar leiðir, utan leiðar 23 á Álftanesi, á 20 mínútna fresti.
Frá og með 19. ágúst í sumar munu valdar leiðir aka á 15 mínútna fresti. Segir í tilkynningu Strætós bs. að nokkrar af þessum völdu leiðum muni aka á 15 mínútna fresti allan daginn en aðrar á annatímum.
Komið verði til móts við óskir um betri tengingar innan hverfa í Grafarvogi, Grafarholti/Árbæ, Kópavogi og Hafnarfirði."
Eftirfarandi kom fram á www.visir.is ;
"Þjónusta Strætó verður skert í sumar og munu vagnar fyrirtækisins aka á hálftíma fresti frá 3. júní til 18. ágúst. Skerðingin kemur til vegna sparnaðar, farþegafækkunar og manneklu.
Leið 16 verður lögð niður en tvær nýjar hringleiðir teknar upp í Grafarvogi. Leiðir 25 og 26 í Kópavogi verða einnig lagðar niður en tvær nýjar koma í staðinn. Þá verða kynntar tvær nýjar leiðir í Hafnarfirði en leið 21 verður lögð niður.
Þetta er vissulega þjónustuskerðing. Við teljum hins vegar að við bætum þetta upp með betri þjónustu úti í hverfunum," segir Einar og bætir því við að það þekkist víðast hvar í Evrópu að þjónusta sé skert yfir sumartímann.
Þessar breytingar byggja á talningum sem fóru fram haustið 2006 og nú í vor. Farþegafjöldinn er alltaf meiri á veturna en sumrin enda er stór hluti okkar farþega skólafólk," segir Einar."
Árangurslaus gúglun staðfesti grun minn endanlega; hvergi er að finna nánari upplýsingar. Ég hafði vonast til að fá svör við eftirfarandi spurningum;
a) Verður sama 30-mínútna tímatafla í notkun?
b) Er ekki allt í lagi í hausnum á þessu liði?
c) Nei, í alvöru, er þetta ekki bara djók?
---
Þegar Akureyringar ákváðu að gera almenningssamgöngur gjaldfrjálsar jókst notkunin um 60%. Forsvarmenn Strætó BS tilkynntu stoltir að aukningin hjá þeim hefði verið innan við 4% eftir síðustu breytingar.
Ég endurtek fyrra röfl; hverjum dettur í hug að bjarga fyrirtæki úr fjárhagsvanda með því að minnka þjónustu og hækka verð?
-----
Gerum ráð fyrir að heimilisbíllinn eyði 5 lítrum/100 km og lítrinn af bensíni kosti 120 krónur. Ef við reiknum bara með eldsneytiskostnaði (og sleppum öllum trygginga/skoðunar/viðhaldspakkanum), kemur í ljós að ef ferðast á lengra en til Þorlákshafnar og til baka, margborgar sig að taka strætó. Annars er heimilisbíllinn betri fyrir budduna.
Svo má auðvitað ekki gleyma því að tíminn er peningar. Ef ætlunin er að vera kominn að Reykjavíkurflugvelli klukkan 9 á laugardagsmorgni, frá Landakoti, gefur "ráðgjafinn" á síðu Strætó BS upp áætlaðan ferðatíma upp á níutíuogtvær mínútur. (Þessi svokallaði "ráðgjafi" er auðvitað efni í enn lengri nöldurpistil).
---
Ég segi þetta oft, en fjandinn hafi það, eitt skipti enn getur varla sakað;
Ég gefst upp. Það er ekki líft í þessu fjandans landi lengur.
![]() |
Mikil óánægja meðal vagnstjóra hjá Strætó bs. um breytingar á vaktakerfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.5.2007 | 20:03
Varðandi Munnræpu.
...þ.e.a.s. fyrri færzlu. QI eru fyndnustu þættir sem nokkurn tíma hafa verið framleiddir. Mark Steel er æði, Stephen Fry er æði og Alan Davies er æði, en saman eru þeir...æði í þriðja? Ég veit það ekki. Horfið bara:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.5.2007 | 03:05
Munnræpa
Ég ætlaði að svara stuttri athugasemd DÞJ um breska nútímagamanþætti, en svarið varð lengra en upprunalega færslan, svo ég breytti henni bara í smá pistling;
Að mínu mati eru My Family bara helvíti skemmtilegir þættir, þó auðvitað komist þeir ekki í hálfkvisti við Monty Python eða Svartasnák. Walliams og Lucas eiga sína spretti, en Catherine Tate held ég að hljóti að vera ein sú ófyndnasta manneskja sem ég hef nokkurntíma heyrt, séð eða ímyndað mér. Sömu brandararnir, sem allir byggja á sömu hugmynd; að reyna að vera eins pirrandi og mögulegt er? Nei takk.
Hins vegar tel ég óréttlátt að dæma breskan húmor dauðan út frá þeim þremur þáttum sem RÚV þóknast að sýna hér. Á Skjá Einum er til dæmis hægt að hlæja sig máttlausan yfir Top Gear. Meira að segja ég horfi á hann, þó ég hafi lítinn áhuga á bílum og viti enn minna um tæknilega hlið þeirra. Ég er ekki einu sinni með bílpróf. Af þeim aragrúa gamanþátta sem streymt hafa frá Bretum síðustu áratugi standa nokkrir upp úr. Þar ber auðvitað fyrst að nefna Monty Python, Blackadder og allt sem Stephen Fry og Hugh Laurie hafa komið nálægt (ég veit að þeir voru líka í Blackadder).
Sketsaþættir hafa verið vinsælir í gegnum tíðina, en í þann flokk falla m.a. Flying Circus og A bit of Fry and Laurie. Aðrir sketsaþættir eins og t.d. Benny Hill Show, Hale & Pace og French & Saunders hafa náð miklum vinsældum, svo ekki sé minnst á fyrirrennara Flying Circus, Do not adjust your set og The complete and utter history of Britain. The Sketch Show var sýndur hérlendis, á Stöð 2, að mig minnir, og Smack the Pony á RÚV. Ennig var hér sýndur ágætis þáttur með Kenny Everett, en þeim sýningum lauk um leið og Stöð 3 hætti útsendingum. Einnig muna sjálfsagt margir eftir snilldarþáttunum Spitting Image, en þar fóru á kostum brúður, margar gerðar eftir þekktum einstaklingum.
Aðstæðnagamanþættir (sitcom) eru oft nefndir sem dæmi um menningarhnignun. Flestir virðast þó vera að hugsa um bandaríska þætti þegar þetta er nefnt, því enginn er skorturinn á góðum breskum aðstæðnaþáttum. Nægir þar að nefna 'Allo 'Allo, Absolutely Fabulous, Black Books, Brittas Empire, Coupling (áður en kaninn misþyrmdi þeim í endurgerð), Office (sama), Fawlty Towers, Father Ted, My Hero, Red Dwarf, Yes (Prime) Minister, The Young Ones og Bottom, Only Fools and Horses og Open All Hours.
Fræðslu- og heimildaþættir hafa á sér það orð að vera þurrir og leiðinlegir, en Bretar hafa verið duglegir að afsanna það. Mark Steel er þar framarlega í flokki, en þó er líklega fremstur fyrrum Pythoninn Terry Jones. Þættir hans, Terry Jones' Barbarians og Terry Jones' Medieval Lives hafa vaið áhuga fólks á sögu, og hvatt áhorfendur til að gagnrýna viðteknar vekjur í söguskoðun, líkt og Mark Steel gerir í sínum þáttum - jafnt í útvarpi sem sjónvarpi- og bókum, en Mark er þó ívið pólitískari en Terry. Í þennan flokk falla einnig þættir Michael Palin, en þeir eru þó "alvarlegri" en hinir fyrrnefndu.
Uppistandararar. Bretland er fæðingarstaður uppistandsins, og þaðan koma margir frábærir uppistandarar. Sem dæmi má nefna Eddie Izzard, Billy Connolly, Bill Bailey, Lee Evans, og Lee Mack.
Af ofangreindu tel ég greinilegt að breskur húmor lifir góðu lífi, ekki síst í rituðu máli, en ekki má gleyma því að snillingar eins og Terry Pratchett, Neil Gaiman, Robert Rankin og Douglas Adams komu allir frá Bretlandi.
Einnig má nefna að Jeremy Clarkson, Richard Hammond og James May (allir þrír úr Top Gear), Mark Steel, Stephen Fry, Hugh Laurie, Terry Jones, Eric Idle, Michael Palin og Ricky Gervais (úr The Office) hafa allir gefið út bækur.
Of langt mál yrði að telja upp allar frábæru gamanmyndirnar sem Bretar hafa sent frá sér í gegnum árin, svo það verður að bíða betri tíma.
Góðar stundir.
---
Þetta...
varð miklu lengra en ég hélt.Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
22.5.2007 | 17:13
Tí hí hí.
![]() |
Sofnaði á rauðu ljósi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.5.2007 | 23:52
Heimska!
Ég hef reynt - í alvöru - að vera umburðarlynd gagnvart skoðunum annarra. En svona helvítis kjaftæði hreinlega get ég ekki þolað. Að lesa sumar athugasemdirnar og ekki síður svör hins trúarblindaða höfundar er of mikið fyrir mína takmörkuðu þolinmæði. Er ekki allt í lagi heima hjá þessu liði? "Fóstur er ekki hluti af líkama konunnar"? Nei, það er alveg rétt, fóstrið er aðskilin vera, sem þrífst innan líkama konunnar, nærist á hennar fæðu og nýtir hennar líkama til að vaxa. Svona eins og sníkill lifir á hýsli. Að nota trúarbrögð sem "rök" í svona umræðu er álíka gáfulegt og að rífast um hvort tunglið sé úr roquefort eða brie.
Af hverju verður frelsaða fólkið nánast (sjá undantekningu t.d. hér ) alltaf sjálfumglatt og fullt fyrirlitningar á okkur hinum? Hversvegna getur þetta pakk ekki bara sætt sig við það að það hefur ekki alltaf rétt fyrir sér, og að trú er ekki forsenda siðferðis? Hversvegna eru trúarbrögð yfirleitt til? Fjandinn hafi það, ég er flutt til Mars.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
20.5.2007 | 19:47
Go Snorri!
Go Snorri, go Snorri, go Snorri, go, Go, GO!
Go forth and be hilarious, Mr. Snory Urgle!
![]() |
Íslendingur í úrslit í uppistandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
17.5.2007 | 20:10
Út með Björn!
![]() |
Hreinn: Dómur kjósenda um verk Björns liggur fyrir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.5.2007 | 22:21
Ding Dong...
...the hatemongering faux-christian hypocrite is dead!
Jerry Falwell, maðurinn sem kenndi heiðingjum, femínistum, samkynhneigðum og fylgjendum fóstureyðinga um næníleven-árásirnar, kallaði alnæmi refsingu Guðs gegn hommum, var fylgjandi kynþáttaaðskilnaði, og vildi að kirkjan sæi um menntun barna í stað skólanna, er dauður! Haha! Hí áðig, djöfulsins sjálfumglaði bastarður, ég vona að þú rotnir í helvíti.
Ó, og þú veist...samhryggist og allt það. Bastarður.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Tenglar
Gamalt tuð
- Blókarspotti Hróa Hróaábendingar
- Blókarspotti Dautt blogg
- Fólk er fífl.is Dautt blogg
- FerðaBlogg Á lífi - fylgist með
- MittSvæði
- Lifandi dagbók Í andarslitrunum
Bloggvinir
-
malacai
-
pannan
-
stutturdreki
-
skrekkur
-
einarsmaeli
-
aulinn
-
furduvera
-
fsfi
-
valgeir
-
gregg
-
gurrihar
-
zeriaph
-
hvilberg
-
hallurg
-
rattati
-
heidar
-
hexia
-
himmalingur
-
hjaltirunar
-
disdis
-
jevbmaack
-
jakobk
-
changes
-
prakkarinn
-
jonthorolafsson
-
andmenning
-
ugluspegill
-
miniar
-
mist
-
hnodri
-
reputo
-
robertb
-
runavala
-
sigmarg
-
sigurjon
-
shogun
-
nimbus
-
skastrik
-
svanhvitljosbjorg
-
stormsker
-
kariaudar
-
zion
-
tara
-
taraji
-
texi
-
thelmaasdisar
-
torfusamtokin
-
toshiki
-
tryggvienator
-
upprifinn
-
vga
-
vest1
-
fingurbjorg
-
gummih
-
kiza
-
kreppukallinn
-
krossgata
-
isdrottningin
-
nosejob
-
olafurfa
-
tharfagreinir
-
thorgnyr
-
valli57
-
apalsson
-
skagstrendingur
-
partialderivative
-
biggihs
-
bjorn-geir
-
dingli
-
einarjon
-
glamor
-
breyting
-
gthg
-
sveinnelh
-
hehau
-
hordurt
-
kt
-
omnivore
-
olijon
-
styrmirr
-
lalamiko
-
thorrialmennings
Bækur
Nýlesið/eftirlæti
-
Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian -
Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
: Mirror, Mirror -
(ISBN: 1740597796 )
Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
: Lonely Planet: Europe on a shoestring
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (12.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar