Færsluflokkur: Bloggar
12.12.2007 | 20:19
Kristilegt siðgæði
Djöfulsins helvítis andskotans hálfvitaskapur! Geta þau ekki druslast til að svara einfaldri spurningu?! "Fallegt orð"!? Meira andskotans hugleysið. Drullist bara til að segja að kristið siðgæði sé betra svo við getum rifist á móti. Ekki fara undan í flæmingi þegar ykkur er bent á merkingu ykkar eigin orða og athafna. Fokking fokkedí fokk!
Jæja, þá er það frá.
Ég var sumsé að fylgjast með hæstvirtum pólitíkusum rífast um hvort væri meira sammála hinu, hvort væri kristnara og hvort vildi fremur "standa vörð um kristin gildi".
Er enginn þingmaður sem ekki telur sig kristinn og þorir að viðurkenna það? Varla eru þeir allir svona líka hákristnir?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
4.12.2007 | 12:43
Hversvegna?
Nú á ég engin börn og hef því ekki hugmynd um hvernig þetta svokallaða "móðureðli" virkar (ef það er þá yfir höfuð til). Sem áhugamaður um ættleiðingar og slíkt hef ég þó hugsað mikið um mikilvægi erfðatengsla þegar kemur að barneignum. Þessi frétt og forsaga hennar hefur hrært nokkuð í höfðinu á mér og helst þetta sem flotið hefur upp;
Nú hafa þessir foreldrar alið upp "röng" börn í næstum ár. Hafa þau ekki bundist börnunum neinum tilfinningaböndum? Hvað gerist ef önnur móðirin nær ekki að mynda tengsl við "rétta" barnið?
Hvað hugsa börnin? Nú eru þau það ung að ekki er hægt að útskýra málið. Jafnvel þó það væri hægt, hvað á að segja? "Mömmu þykir voða vænt um þig, en hún vill frekar fá hina stelpuna"? Þau eru þó nógu gömul (væntanlega) til að þekkja foreldra sína, þ.e.a.s. úr t.d hóp. Hvernig gengur að venja þau á nýja mömmu og nýjan pabba?
Þetta vekur einnig upp hina óumflýjanlegu spurningu; hversvegna eru þau að býtta?
![]() |
Tékknesk stúlkubörn aftur til foreldra sinna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
4.12.2007 | 01:59
Ég er ástfangin.
...og það af tveimur manneskjum í einu.
Annarsvegar Nönnu R. eftir að ég las bloggfærslu hennar um matarboð og sá þennan matseðil (ég vona að hún kæri ekki ritstuldinn);
grafið kindafillet/límónumaríneruð hörpuskel/kúskús með basilíku og arganolíu
Castell de Villarnau cava
hráskinka með þurrkuðum perum og klettasalati
pistasíu-risarækjur með lárperumauki
Torres Esmeralda
kornhænusúpa með smjördeigsstöngum
andabringusalat með klettasalati og granateplafræjum
Francois dAllaines pinot noir
skötuselur með sætkartöflustöppu og paprikumauki
Emporio frá Sikiley
nautalund með portobello- og kastaníusveppum, ofnsteiktu grænmeti og sósu
Castello di Querceto Chianti Classico
fjórir ostar
púrtvín
þrílitar súkkulaðiísrósir með hindberjasósu
kaffi og konfekt
Calvados, koníak og Pedro Ximenes
Og hinsvegar Gene Wilder. Ég var sumsé að komast að því að fíni mynddiskurinn sem ég festi kaup á í Tiger (borið fram tíer, ekki tægör. Dönsk búð. Þar sem allt kostaði tíer. Skilurðu?) er ekki Lísa í Undralandi frá sextíogeitthvað með Peter Sellers og Dudley Moore eins og stendur á hylkinu, heldur Lísa í Undralandi frá nítíogníu með Gene Wilder og Whoopi Goldberg og Martin Short og fleiri vanmetnum leikurum.
Pissustopp; Hvernig dettur nokkrum manni í hug að auglýsa Mixed Nuts (snilldarmynd) með því að nefna að Steve Martin (sem er þrátt fyrir allt nokkuð sæmilegur leikari) hafi leikið í Ódýrari í tylftum? Hversvegna ekki að nefna Dauðir menn ganga ekki í Kórónafötum, Þrjá vini, Fíflið eða Húspíuna? Þetta eru allt góðar aulahúmorsmyndir (DmgeíK þó langbest, sérstaklega ef áhorfandinn hefur áhuga á film noir). Tala ekki um Novocaine, sem er einmitt síðasta verulega góða (góð lýsir henni ekki nógu vel. Mig skortir orð. Þessi mynd er frábær í alla staði) myndin sem hann lék í.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
30.11.2007 | 09:23
Ég er trúleysingi. Duh.
Ég man ekki til þess að ég hafi nokkurn tíma trúað á guð. Ég bað bænir þegar ég var krakki, en tengdi það ekkert sérstaklega einhverjum siðferðisboðorðum, leit meira á það sem "eitthvað sem krakkar gera". Sá boðskapur kom frá leikskólanum. Jésús er besti vinur barnanna.
Þegar ég var tíu eða ellefu ára (um það leyti sem pabbi dó) ákvað ég að fermast ekki. Þegar ég tilkynnti þetta var því tekið með góðlátlegu "þú segir það núna" (sem nota bene eru sömu viðbrögð og ég fæ í dag þegar ég segist ekki ætla að eignast börn). Þegar presturinn kom í skólann til að dreifa einhverjum fermingartengdum pappírum rétti ég þau til baka og sagðist ekki ætla að fermast. Presturinn brosti.
"Viltu samt ekki taka blöðin?"
"Nei takk. Ég þarf þau ekki. Ég ætla ekki að fermast."
"Taktu samt blöðin, kannske vilja foreldrar þínir að þú fermist."
Ég undraðist þetta svar, enda stöðugt hamrað á því að fermingin væri okkar val. Ég neitaði enn að taka við blöðunum og presturinn gafst upp.
Árin eftir þetta las ég mikið um trúmál. Sá lestur styrkti mig nær eingöngu í trúleysinu. Mér fannst svosem rökrétt að vera góður við náungann, ekki drepa, ekki stela eða ljúga o.s.frv. Ég bara gat (og get) ekki skilið hvernig það tengist einhverjum kalli sem dó fyrir 2000 árum.
Ég kynntist á þessum árum nokkrum stúlkum. Ein er (eða var) Mormóni. Mikið þóttu mér það vitlaus trúarbrögð. Önnur var Vottur Jehóva (engin jól eða afmæli? Og engar blóðgjafir? Eruði klikk?). Ein var virk í KFUM&K og mætti ég stundum á fundi með henni. Það var nefnilega poolborð í kjallaranum. Enn önnur dró mig á samkomur í Fíladelfíu. Þar voru svo sætir strákar.
Ég hef enn ekki fundið trú. Þaðan af síður hef ég fundið þessa vinsælu "pick'n'mix" trú sem Íslendingar (þessir fimmtán trúuðu) virðast halda sig við. Mér hefur alltaf fundist það órökrétt að segja Biblíuna orð Guðs Almáttugs, Alviturs & Algóðs en fylgja svo bara þeim boðum og bönnum sem manni líst best á.
"Það má ekki drepa (nema í stríði). Tékk!
Það má ekki stela (en eitt vínber er ekki þjófnaður). Tékk!
Það má ekki ljúga (nema bara stundum svona ef það er nauðsynlegt eða þægilegra). Tékk!
Það má ekki borða skelfisk. En humar er svo góður...æ, þetta er skrifað á öðrum tíma og á ekki við í dag.
Konur eru óæðri körlum. Svona má ekki segja! Þetta er náttúrulega barn síns tíma og telst ekki með.
Vera góður við náungann (nema hann sé ósammála mér). Tékk!
Það er auðveldara fyrir úlfalda að komast í gegnum nálarauga en ríkan mann að komast inn í himnaríki. Öööh. Guð meinti örugglega eitthvað annað. Svo er ég auðvitað nógu ríkur til að kaupa frekar stóra nál. Og nokkra úlfalda ef fyrsta tilraun misheppnast."
Ef þú ætlar endilega að trúa því að Biblían sé orð Guðs, óhagganlegt og eilíft, farðu þá eftir öllu, ekki bara því sem hentar hverju sinni.
-
Þó ég hafi tekið kristnina fyrir hér, hef ég ekki orðið vör við að önnur trúarbrögð (eða áhangendur þeirra) séu frábrugðin svo nokkru skipti. Í kristninni eru margar fallegar pælingar. Það sama gildir um hin trúarbrögðin, hvort sem þau nefnast íslam, satanismi eða búddismi.
-
Ps. Ég sá Jesú í skýjunum í sumar. Sólin var að setjast, og baklýst skýin mynduðu sterka andlitsmynd Jésú hins vestræna, með skegg og allt. Mín fyrsta hugsun var "Hei! Jésú!" Önnur hugsunin var svo "Fokk, ég er ekki með myndavélina!"
Þriðja hugsunin var "Djöfulli er ég þunn."
![]() |
Ráðherra segir Siðmennt misskilja |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
28.11.2007 | 12:02
Innkaup.
Þegar mig langar svakalega að gerast þunglynd (meira en venjulega, þ.e.a.s.) fer ég inn á heimasíðu danska stórmarkaðarins SuperBest. Þar er hægt að skoða tilboðsbæklinginn þeirra og gera innkaupalista í leiðinni með því einu að smella á vörurnar sem birtast í bæklingnum. Þetta geri ég stundum, mér til yndisminnkunar.
Tilboð yfirstandandi viku gilda til laugardagsins 1. des. Ég ákvað að "versla" fyrir 10.000 íslenskar krónur (um 800 danskar á núverandi gengi). Hér er það sem ég setti í rafrænu körfuna;

Store juleappelsiner 10 stk. | 1.stk (a.30,-) Total: 30,- |
Svinekoteletter 500 g. | 1.stk (a.39,-) Total: 39,- |
Hakket oksekød 2000 g. | 1.stk (a.75,-) Total: 75,- |
Kyllingebrystfileter 280 g. | 1.stk (a.29.95,-) Total: 29.95,- |
Hel Fersk Dansk kylling 1.700 g. | 1.stk (a.69.95,-) Total: 69.95,- |
Hatting specialbrød 3 poser. (250 - 720 g) | 1.stk (a.50,-) Total: 50,- |
Frigodan grøntsagsblandinger 3 stk. (450 - 750 g) | 1.stk (a.50,-) Total: 50,- |
K-salat | 1.stk (a.25,-) Total: 25,- |
Buko Smelteost 2 stk. (250 g.) | 1.stk (a.35,-) Total: 35,- |
Riberhus ost ca. 625 - 710 g. | 1.stk (a.44.95,-) Total: 44.95,- |
Original juice 3x2 l. | 1.stk (a.50,-) Total: 50,- |
Sodavand 30 flasker. (250 ml.) | 1.stk (a.49.95,-) Total: 49.95,- |
Kærgården 3 pakker. (250 g.) | 1.stk (a.27.95,-) Total: 27.95,- |
Schulstad weekendboller 3 pakker. (530 -550g.) | 1.stk (a.20,-) Total: 20,- |
Kims Snacks eller Chips 2 poser. (100 - 250 g.) | 1.stk (a.30,-) Total: 30,- |
Schulstad levebrød 430 - 1000 g. | 1.stk (a.9.95,-) Total: 9.95,- |
Marmelade eller syltetøj 2 glas. (330 - 400 g.) | 1.stk (a.25,-) Total: 25,- |
Lotus 16 ruller. | 1.stk (a.39.95,-) Total: 39.95,- |
BKI Classic 5 poser (500 g.) | 1.stk (a.99.95,-) Total: 99.95,- |
Total: 801.6,- |
Athugið að þar sem magn er innan sviga er átt við hvert stykki. Kaffitilboðið samanstendur sumsé af fimm 500 gramma pokum.
Inn í reikninginn vantar reyndar pantinn fyrir gosið, þ.e. 30x1 dkr fyrir flöskurnar + 10 dkr fyrir kassann.
Hvð ætli þetta myndi kosta hér á Fróni?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.11.2007 | 23:51
Bloggleti
En frumleg fyrirsögn. Jæja. Ég hef sumsé verið óhugnanlega löt til netskrifa undanfarið, en það er að mestu vegna vinnu. Ég er með vinnu núna. Vakna klukkan korter yfir sex á morgnana, er mætt átta, vinn til fimm (teorí) eð sjö (praxis) við að draga allskyns hluti á eftir mér fram og til baka um vöruhús innanlandsflutningadeildar Eimskips. Þetta finnst mér gaman. Vinnan er aðallega fólgin í þessum drætti (hah!), vigtunum og mælingum, kvittunum og sortéringum ýmiskonar.
Annars er ótrúlegt hvernig manni tekst að gleyma dagsetningunni þó maður kroti hana oft á dag. Sama gildir um einfalda hluti eins og póstnúmerið á Akureyri.
Ég hef orðið vör við ýmsar útgáfur bæjarnafna í vinnunni. Hér er handhægur listi fyrir hina skrifblindu/fáfróðu;
Blöndu-ós, ekki Blön-dós
Sauð-ár-krókur, ekki Sauða-krókur
Nes-kaupstaður, ekki Neskupstaður
Vestmanna-eyjar, ekki Vesmaneyjar
Hellis-sandur, ekki Hellis-andur
Reyðar-fjörður, ekki Reiðar-fjörður (og enginn býr á Reiðarfyrði heldur)
Egils-staðir, ekki Egil-staðir
Og í guðanna bænum; ef þið eruð ekki viss á póstnúmerinu, flettið því upp. Ekki gera ráð fyrir að allir staðir á norðurlandi hafi sama póstnúmer og Akureyri, að Reyðarfjörður sé hverfi á Egilsstöðum eða að Selfoss nái yfir allt suðurlandsundirlendið. Símaskráin er á netinu og í prentformi á flestum betri heimilum.
Og annað; þó ég sé eina stelpan þarna þýðir það ekki að ég finni ekki muninn á fimm kílóa pakka og fimmtán kílóa pakka. Og ég heiti ekki elskan, vinan eða góða mín! Og það er ekki mér að kenna að Vestmannaeyjabíllinn skuli fara fyrr en þú hélst! Og ef þú sérð ekki muninn á Flytjanda og Landflutningum ertu vitlaus! Og af hverju í ósköpunum heldurðu að innanlandsflutningar þýði innabæjarflutningar? Drullastu bara sjálfur með pakkann upp í Árbæ. Og hundskastu svo til að merkja helvítis kassann, annars tökum við enga ábyrgð á því að hann endi á réttum stað. Og hvernig væri að pakka draslinu almennilega inn áður en það er sent í stað þess að skammast yfir rispum? Og getið þið ekki flokkað brettin sjálfir í stað þess að hrúga öllu hipsumhaps í eina kássu?
En annars er vinnan fín.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
11.10.2007 | 22:44
Þa væru bra allir fulir, alltaf!!1!
OMG! Skilru, frænka mín fór einusini til Rúslands oþa voru bra allir a drekka vodka bra í hádeijinu á miðikudeiji skilru! Émeina halló!!! É á ekki börn eða neitt (pældu samt kaða væri fyndið!!! Ein einka mamma bra lol!) en samt ef ég ætti börn myndi ég ekkirt vylja að þaug væru bra útí búð a drekka bjór einkað fimmára! Þa er sols úti nema kanski í Danmörk o Svíðjóð og sona en í Rúslandi eru br smábörn a drekka og allir eru bra fyllibittur og vinna ekki einusynni. Kvað er fólk a pæla?!?!?!?1??! É meyna sígó er allt örruvísi, þí það hefur aldrey verið bannað eins og bjór o sols. So er líka fólk ekkerrt að keira o reikja og kanski keira á annann bíl sem er kanski barn í! OMG það væri gg vont a selja bjór eikkað í bónusi, eikkur bónusbjór o hagkupsbjór og krónukvítvin! Oj bra, þa mundu bara únlingar kaupa sols, ekki einkað fínt fólk að drekka fisk og steik og einkað! Halló!!!!!! Émeyna pælið aðeins sko!
En svona í fullri (ó, ha ha) alvöru: lækkið tolla og gjöld, gefið söluna frjálsa og fylgist með því hvernig allt fer beinustu leið til fjandans. Þið vitið, svona eins og allt fór til fjandans þegar bjórinn var leyfður. Og þegar Sjónvarpið fór að senda út á fimmtudögum. Og þegar við hættum að drekkja fólki fyrir framhjáhald. Og þegar við fengum sjálfstæði. Og þegar útvarpið kom til sögunnar. Og þegar við fórum að leyfa konum að kjósa.
Eins og allt fór til fjandans í Danmörku og Bretlandi og Hollandi. Og öllum hinum stöðunum.
Skál!
![]() |
Á að gefa bjór- og léttvínssölu frjálsa? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
10.10.2007 | 13:53
Helfararafneitun og ráð við henni.
Allt í lagi. Fyrirsögnin er dálítið villandi. Það eru nefnilega engin ráð. Síðustu daga hef ég reynt að tala vinkonu mína til, en hún heur af enhverjum ástæðum bitið í sig ýmsa vitleysu, m.a. að Helförin hafi aldrei átt sér stað og að ástæða fátæktar í Afríku sé heimska þeldökkra íbúa álfunnar.
Ég hef hingað til einbeitt mér að því að hrekja ýmsar fullyrðingar hennar í sambandi við "meinta" Helför, en öllum mínum gáfulegu athugsemdum er vísað á bug. Þetta er nefnilega allt samsæri gyðinga, sjáðu til. Einhver snillingurinn tók sig til og skapaði "heimildamynd" undir titlinum Einn þriðji af helförinni þar sem meðal annars er "sannað" að nazistar gætu ekki hafa brennt lík í opnum gryfjum. Hvaða hávísindalegu rannsóknir liggja þarna að baki? Jú, vinurinn skellti lambalæri í holu á ströndinni og kveikti í. Auk þess bendir hann á að ekkert þak hafi verið yfir gryfjunum, svo þeir gætu ekki hafa notað þær í rigningu. Þetta eru náttúrulega pottþétt rök.
Þegar ég vísaði vinkonunni á síðuna www.nizkor.org benti hún á að á síðunni væri vitnað í bók ritaða af gyðingi. Þar af leiðandi væri síðan ómarktæk með öllu. Ef helfararsjúklingnum er bent á gögn frá nazistum sjálfum eru þau án efa fölsuð, og séu þau komin frá óháðum rannsóknarmönnum hljóta viðkomandi að hafa verið heilaþvegnir.
Ég hef áður minnst á að fólk eigi að hafa rétt á sínum skoðunum, sama hversu veruleikafirrtar, heimskulegar og/eða ógeðfelldar þær kunni að vera. Ef einhverjum dettur í hug að ég sé að skipta um skoðun vil ég taka þetta fram; sem einstaklingur hef ég fullan rétt á að stunda rökræður -sama hversu einhliða rakahlutinn kann að vera. Ríkið hefur aftur á móti engan rétt til að skipta sér af skoðunum fólks, nema skoðanirnar komi fram á siðferðislega glæpsamlegan hátt*. Vinkona mín er ekki í áhrifastöðu innan þjóðfélagsins - sem betur fer - og hefur því afar takmörkuð völd til að breyta heiminum í kynþáttaskipta nazistaparadís.
*Með siðferðislega glæpsamlegu athæfi á ég við athæfi sem gengur á rétt annarra einstaklinga til frelsis, hamingju og heilsu. Þessu má ekki rugla saman við lagalega glæpi, hverra grundvallarröksemd er "það er bannað af því að það er bannað".
Svo má auðvitað deila endalaust um siðferðisleg viðmið, sem og fara í hártoganir um merkingu orðanna hamingja og frelsi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.10.2007 | 16:10
Só fokking vott!?
a) Það átti að farga áfenginu.
b) Það sem hefur verið ákveðið að farga flokkast sem rusl.
c) Ergo; fólkið stal rusli.
Einhver sagði einhverntíma að enginn væri glæpur án fórnarlambs. Hvert er fórnarlambið hér annað en hin gráðuga einokunarverslun ríkisins? Sjálf "stel" ég oft rusli, og fæ ekki séð að það skaði neinn. Það er þá frekar hitt - að ég hjálpi með þessu verslununum, þar sem þær hafa þá aukapláss í gámunum á eftir.
![]() |
Dæmd fyrir að stela áfengi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.9.2007 | 20:33
Hvarf Madeleine
Lítil og sæt stúlka hvarf af hótelherbergi. Hryllilegt! Voru það foreldrarnir? Er hún í Marokkó? Er hún á lífi? Hverjum er ekki andskotans sama!?
Af hverju fær þetta mál svona mikla umfjöllun? Er það eitthvað hryllilegra en, segjum, mál Daniels Entwistle, sem hefur ekki sést síðan hann hvarf af heimili sínu í Norfolk í maí 2003? Hvað með Charlene Downes, en hún hvarf fyrsta nóvember sama árs efir að hafa skroppið að "norðurbryggju" Blackpool. Eða Mario Borja-Valencia sem hefur ekki sést síðan 2001? Reachelle Smith hvarf af heimili sínu í Bandaríkjunum 17. maí í fyrra. Hún var fjögurra ára.
Hvað með þessi þúsund annarra barna sem hafa horfið sporlaust?
Ef einhver getur útskýrt fyrir mér hvað er svona fokking spes við þennan krakka, þetta mál, endilega gerið það!
Fokking pretty white girl syndrome.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Tenglar
Gamalt tuð
- Blókarspotti Hróa Hróaábendingar
- Blókarspotti Dautt blogg
- Fólk er fífl.is Dautt blogg
- FerðaBlogg Á lífi - fylgist með
- MittSvæði
- Lifandi dagbók Í andarslitrunum
Bloggvinir
-
malacai
-
pannan
-
stutturdreki
-
skrekkur
-
einarsmaeli
-
aulinn
-
furduvera
-
fsfi
-
valgeir
-
gregg
-
gurrihar
-
zeriaph
-
hvilberg
-
hallurg
-
rattati
-
heidar
-
hexia
-
himmalingur
-
hjaltirunar
-
disdis
-
jevbmaack
-
jakobk
-
changes
-
prakkarinn
-
jonthorolafsson
-
andmenning
-
ugluspegill
-
miniar
-
mist
-
hnodri
-
reputo
-
robertb
-
runavala
-
sigmarg
-
sigurjon
-
shogun
-
nimbus
-
skastrik
-
svanhvitljosbjorg
-
stormsker
-
kariaudar
-
zion
-
tara
-
taraji
-
texi
-
thelmaasdisar
-
torfusamtokin
-
toshiki
-
tryggvienator
-
upprifinn
-
vga
-
vest1
-
fingurbjorg
-
gummih
-
kiza
-
kreppukallinn
-
krossgata
-
isdrottningin
-
nosejob
-
olafurfa
-
tharfagreinir
-
thorgnyr
-
valli57
-
apalsson
-
skagstrendingur
-
partialderivative
-
biggihs
-
bjorn-geir
-
dingli
-
einarjon
-
glamor
-
breyting
-
gthg
-
sveinnelh
-
hehau
-
hordurt
-
kt
-
omnivore
-
olijon
-
styrmirr
-
lalamiko
-
thorrialmennings
Bækur
Nýlesið/eftirlæti
-
Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian -
Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
: Mirror, Mirror -
(ISBN: 1740597796 )
Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
: Lonely Planet: Europe on a shoestring
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 3493
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar