Færsluflokkur: Bloggar

Heimska!

Ég hef reynt - í alvöru -  að vera umburðarlynd gagnvart skoðunum annarra. En svona helvítis kjaftæði hreinlega get ég ekki þolað.  Að lesa sumar athugasemdirnar og ekki síður svör hins trúarblindaða höfundar er of mikið fyrir mína takmörkuðu þolinmæði.  Er ekki allt í lagi heima hjá þessu liði? "Fóstur er ekki hluti af líkama konunnar"? Nei, það er alveg rétt, fóstrið er aðskilin vera, sem þrífst innan líkama konunnar, nærist á hennar fæðu og nýtir hennar líkama til að vaxa. Svona eins og sníkill lifir á hýsli. Að nota trúarbrögð sem "rök" í svona umræðu er álíka gáfulegt og að rífast um hvort tunglið sé úr roquefort eða brie.

 

Af hverju verður frelsaða fólkið nánast (sjá undantekningu t.d. hér ) alltaf sjálfumglatt og fullt fyrirlitningar á okkur hinum? Hversvegna getur þetta pakk ekki bara sætt sig við það að það hefur ekki alltaf rétt fyrir sér, og að trú er ekki forsenda siðferðis? Hversvegna eru trúarbrögð yfirleitt til? Fjandinn hafi það, ég er flutt til Mars.


Go Snorri!

Go Snorri, go Snorri, go Snorri, go, Go, GO!

 

Go forth and be hilarious, Mr. Snory Urgle!


mbl.is Íslendingur í úrslit í uppistandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Út með Björn!

Ætlum við nú -enn einu sinni- að beygja okkur fram og biðja um meira? Mótmælum áframhaldandi valdníðslu Björns, þrýstum á kýlið þar til það springur og gröfturinn spýtir honum burt! Hversu margir kjósendur annarra flokka ætli hefðu strikað yfir nafn hans, virkaði kerfið svoleiðis? Ég átti erfitt með að ógilda ekki seðilinn með því að krota yfir óbermið. Sá hroki sem hann hefur sýnt undanfarið kemur engum á óvart sem eitthvað hefur fylgst með fréttum síðustu ár. Manngerpið er gersamlega óþolandi! Út með hann!
mbl.is Hreinn: Dómur kjósenda um verk Björns liggur fyrir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ding Dong...

...the hatemongering faux-christian hypocrite is dead!

 

Jerry Falwell, maðurinn sem kenndi heiðingjum, femínistum, samkynhneigðum og fylgjendum fóstureyðinga um næníleven-árásirnar, kallaði alnæmi refsingu Guðs gegn hommum, var fylgjandi kynþáttaaðskilnaði, og vildi að kirkjan sæi um menntun barna í stað skólanna, er dauður! Haha! Hí áðig, djöfulsins sjálfumglaði bastarður, ég vona að þú rotnir í helvíti.

 Dauður! Haha!

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Ó, og þú veist...samhryggist og allt það. Bastarður.

 


Lýðræðið er dautt

"God forbid we should ever be twenty years without such a rebellion.
The people cannot be all, and always, well informed. The part which is
wrong will be discontented, in proportion to the importance of the facts
they misconceive. If they remain quiet under such misconceptions,
it is lethargy, the forerunner of death to the public liberty. ...
And what country can preserve its liberties, if it's rulers are not
warned from time to time, that this people preserve the spirit of
resistance? Let them take arms. The remedy is to set them right as
to the facts, pardon and pacify them. What signify a few lives lost
in a century or two? The tree of liberty must be refreshed from
time to time, with the blood of patriots and tyrants.
It is its natural manure."

-Thomas Jefferson

 

 

 

"People crushed by law have no hope but from power.
If laws are their enemies, they will be enemies to laws;
and those who have much to hope and nothing to lose
will always be dangerous..."

-Edmund Burke

 

 

"The highest manifestation of life consists in this: that a being governs its own actions. A thing which is always subject to the direction of another is somewhat of a dead thing."

-Heilagur Tómas Aquinas

 

 

"Authority intoxicates,

And makes mere sots of magistrates;

The fumes of it invade the brain,

And make men giddy, proud and vain."

-Samuel Butler

 

 

 

 Undermine their pompous authority, reject their moral standards, make anarchy and disorder your trademarks. Cause as much chaos and disruption as possible but don't let them take you ALIVE.

 

-Sid Vicious
----

 

Gerum uppreisn! Ráðumst inn í Stjórnarráðið, á Alþingi og í Seðlabankann og hrekjum stjórnina frá völdum! Tökum þau í okkar hendur og kremjum þessa valdadrukknu kúgara! Hér þýðir ekki að segja að við höfum það svo gott, að allt sé svo frábært, því það er það ekki. Hér situr ríkisstjórn sem hefur ekki umboð meirihluta þjóðarinnar! Hér sitja þingmenn sem fjórðungur kjósenda flokksins strikaði yfir. Sjálfstæðismenn þrjóskast við, halda í maddömuna og hlusta ekki á vilja þjóðarinnar! Viljið þið fjögur ár til viðbótar af biðlistum, stóriðju, lögum sem stangast á við alþjóðasáttmála (svo ekki sé minnst á almenna skynsemi), ríkisrekinni hjátrú, heimilisleysi, fátækt og kúgun!? Ef þið viljið alvöru breytingar, grípið þá til vopna! Anarkismi er eina svarið, lýðræðið virkar ekki!


Ef stjórnin heldur...

...þá flyt ég úr landi eða skýt einhvern. Gumma Steingríms á þing núna! Okkur vantar fleiri róttæklinga á þing!

Hver treystir löggunni?

Margir þekkja ljótar sögur af lögreglunni. Ég er engin undantekning, en þar til um síðustu helgi hafði ég aldrei lent í neinu alvarlegra en smávægilegri líkamsárás. Sú saga er löng og leiðinleg...en ég ætla samt að segja hana!

Á "menningar"-"nótt" fyrir nokkrum árum var ég á vappi um bæinn ásamt nokkrum vinkonum mínum. Fyrir okkur varð hópur unglingsstúlkna sem sökuðu mig um (ekki spyrja) að hafa "gelt á eftir þeim um daginn" og ætluðu að lemja mig með röri sem þær höfðu í fórum sínum. Vinkona mín gekk á milli, en ég hljóp að lögreglubílnum sem stóð á Lækjartorgi. Þar gubbaði ég út úr mér helstu málavöxtum, en svo vildi til að kunningi minn stóð við bílinn. Um leið og ég nefndi nafn vinkonu minnar, rauk hann af stað til að verja hana. Lögreglumennirnir voru aftur á móti ekkert að flýta sér, heldur þurfti ég að endurtaka alla söguna. Þeir rúlluðu loks af stað þessa tuttugu metra fyrir hornið. Þá var vinkona mín þegar meidd, en strákaulinn sem stóð á milli heldur verr farinn, með glæsilegt glóðarauga, en sem betur fer engin alvarleg meiðsli.  

Við þetta atvik spunnust miklar umræður okkar í milli um meinta hjálpsemi lögreglunnar. Rifjaði vinkona mín þá upp sögu sem ég hef síðan fengið staðfesta hjá "fórnarlambinu".

Þegar þessi vinkona mín var fimmtán ára eða svo var hún stödd niðri í bæ ásamt kunningja okkar. Hann er mikill rokkari, með sítt hár, skegg og er yfirleitt klæddur svörtum leðurfrakka. Einhverjir piltar voru ekki sáttir við þetta lútt, og ákváðu því að gefa honum makeover með hnefum. Þegar hann staulaðist frá þeim að lögreglubílnum (hér erum við að tala um nánast sömu vegalengd og í fyrri sögunni, þar sem þessi árás átti sér einnig stað í Austurstræti og bíllinn stóð sem fyrr á Lækjartorgi) og sagði þeim hvað hefði gerst, og benti auk þess að piltunum, sem stóðu pollrólegir hinum megin við hornið fékk hann skjót viðbrögð. Löggimann sagðist -um leið- ekkert geta gert, því vinur minn væri ekki með áverkavottorð! Vinur minn ítrekaði að þetta hefði gerst fyrir nokkrum mínútum, árásarmennirnir væru enn á sínum stað og þeir gætu greinilega séð áverkana. "Nei, ekkert hægt að gera nema þú komir með áverkavottorð." Þarna hefðu sumir gefist upp, en kunningi minn tók þess í stað leigubíl beint upp á slysó og fékk vottorðið, rölti sig inn á lögreglustöð daginn eftir og kærði. Sagan endar hins vegar ekki þar. Sex mánuðum seinna fær vinkona mín upphringingu frá lögreglunni. Hún er spurð hvort hún hafi orðið vitni að árás, hún játar því og fær á móti þessa æðislegu setningu: Geturðu lýst þeim? Hún verður hálf hvumsa, bendir þeim á tímann sem er liðinn, viðbrögð lögreglunnar þetta kvöld og á móti kemur: Varstu ölvuð? Þar lýkur sögunni eftir því sem ég best veit.

Annar kunningi minn fékk heimsókn frá kollega sínum um daginn. Sá síðarnefndi hótaði kunningja mínum (köllum hann bara A) lífláti og barsmíðum ef hann pakkaði ekki öllu sínu saman og hypjaði sig af landi brott. Ástæðan var sú að þriðji aðilinn hafði borið í kollegann sögur um hann sem A hafði sagt honum. Meginefni sagnanna var meint geðveila kollegans. Kolleginn ákvað að besta leiðin til að sanna geðheilsu sína væri að hóta A. Skemmtileg lógík það. Hættu að segja að ég sé geðveikur, annars drep ég þig. A hringdi í lögregluna um leið og kolleginn var farinn, en eitthvað tóku þeir víst fálega í þetta. Skömmu síðar ákvað hann að hringja og athuga hvort þetta hefði verið skráð. Hann hringdi í sama númer (það er þriggja stafa og byrjar á 112) en þá brá svo við að enginn svaraði. Já, þið lásuð rétt; það hringdi út hjá 112! Hann gafst ekki upp, en hringdi aftur, og var þá svarað. Honum var gefið samband við lögreglustöðina...en þar var ekki svarað! Finnst ykkur þið ekki vera örugg? Hvað ef kolleginn hefði verið kominn til að standa við hótanirnar, og neyðarlínan ekki tiltæk?

Loksins er komið að minni sögu. Hún er svo sem ekki merkileg, ég var ekki lamin og mér var ekki nauðgað. Ég fór sumsé á djammið, var búin að drekka nokkuð mikið og var farin að hugsa mér til hreyfings. Ég var að tala við strák, sagði honum að ég ætlaði heim, og hann sagðist sjálfur vera á leið heim. Ættum við ekki að splitta bíl? Ég tók undir það, enda ódýrara fyrir tvo að taka bíl en einn. Hann veiddi leigara og hann gaf honum upp sitt heimilisfang. Ég beið með að gefa upp mitt, því ég vildi ekki að strákurinn vissi það. Bílstjórinn ók að fyrri áfangastað í Þingholtunum, og þar byrjuðu vandræðin. Strákurinn reyndi að fá mig inn með sér. Leigubístjórinn neitaði að keyra mig lengra og sagði mér að "drullast út úr bílnum". Ég neitaði, sagðist ætla heim til mín, og þegar bílstjórinn fór að kalla mig öllum illum nöfnum bað ég hann um númer bílsins til að kvarta yfir honum. Þá færðist hann allur í aukana og sagði mér að "drulla mér út úr fokking bílnum" annars hlyti ég verra af. Þegar hér er komið við sögu var ég orðin hálfhrædd við þá báða, bílstjórann sem jós mig fúkyrðum og piltinn sem var farinn að taka undir með honum og reyna að draga mig með  valdi út úr bílnum. Ég stökk hinum megin út úr bílnum og hljóp í burtu hágrátandi og í sjokki. Á hlaupunum hringdi ég í 112. Ekki tók betra við þar. Ég reyndi að stama upp úr mér málavöxtum inn á milli ekkasoganna, en aðilinn sem varð fyrir svörum sagði mér að "hringja þegar eitthvað gerðist í alvörunni". Síðan skellti hann á. Ég ráfaði aftur niður í miðbæ, og var svo heppin að rekast á kunningjakonu mína sem gat reddað mér fari heim, og hélt utan um mig á leiðinni.

 

Þegar ég segi þessar sögur býst ég alltaf - svona innst inni -  við því að fólk trúi mér ekki. Annað hefur komið á daginn. Flestir virðast þekkja sögur af afskiptaleysi lögreglunnar, og jafnvel verri sögur en þessar. Sögur þar sem það gerir illt verra að tala við lögregluna. Þessi tvö síðastnefndu atvik eru þó líklega þau fyrstu sem ég heyri af afskiptaleysi Neyðarlínunnar. 

   


Jæja já?

"Þar kemur fram að eftir áratuga rannsóknir sé ljóst að óskírð börn, sem deyja, lendi ekki í forgarði vítis eins og til þessa hefur verið haldið fram."

 Rannsóknir? Hvernig þá? Báru þeir  lista yfir óskírð börn saman við íbúa himnaríkis? Fóru þeir í skoðunarferð um Limbó og leituðu að óskírðum krökkum? Hvernig í fjandskotanum komust þeir að þessu?

 Ætli "rannsóknir" eigi við skjöl? Renndu þeir kirkjuplöggum í gegnum skanna sem mælir magn guðlegs innblásturs?

 

Mín kenning er að þeir hafi bara skellt sér í andaglas og spurt sjálfir. 


mbl.is Óskírð börn ekki lengur í forgarði vítis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Strætó sökkar...

...en sjálfstæðismenn sökka meira.

 Á Akureyri hefur gefist vel að hafa frítt í strætó. Hjá reykvískum strætisvagnaráðherrum virðist svarið við minnkandi notkun á vögnunum vera að hækka gjöld og skerða þjónustu. Þetta hreinlega meikar ekkert fokking sens. Um Strætó B(ull)S(hit) gilda alveg sömu reglur og önnur fyrirtæki á "frjálsum" markaði. Ef ég ræki fyrirtæki og viðskiptin minnkuðu, þyrfti ég að vera nokkuð slæmur forstjóri til að halda að ég gæti bjargað rekstrinum með því að hækka verð um 50% og hafa bara opið á mánudögum á milli átta og níu fyrir hádegi. Ef stærstur hluti viðskiptavina minna væri láglaunafólk, námsmenn og öryrkjar væri þessi stefna enn heimskulegri.

Þetta virðist vera stefna Strætó BS í dag. Vinkona mín tók sig til fyrir nokkru síðan og reiknaði það út að það væri í raun ódýrara að reka bíl en taka strætó. Reyndar hef ég ekki séð þessa útreikninga, svo ég hef bara hennar orð fyrir niðurstöðunni. Miðað við stefnuna undanfarið kæmi mér ekkert á óvart að þetta reyndist rétt.


mbl.is Deilt um fyrirhugaðar breytingar á leiðakerfi Strætó bs.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Kverúlant

Tinna Gunnarsdóttir Gígja
Lestu bara helvítis bloggið, minn karakter kemur þessu ekkert við.
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Nýjustu myndir

  • ...!
  • Untitled

Bækur

Nýlesið/eftirlæti

  • Mark Steel: It's not a runner bean: Dispatches from a slightly successful comedian
    Yndislegi, yndislegi maður! Bókin fjallar um strögglið við að verða "slightly successful" grínisti, og er algjört möst fyrir uppistands-áhugamenn.
    *****
  • Gregory Maguire: Mirror, Mirror
    Mjallhvít, vonda "stjúpan" Lucrezia Borgia og viskutré. Hvað þarftu meira?
    ****
  • Ýmsir: Lonely Planet: Europe on a shoestring (ISBN: 1740597796 )
    Á að vera nokkuð góð, en við sjáum nú til með það í henni Evrópu. Seiseijá.
    ***

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.7.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband